Fara í efni

Fjölmenningarráð

26. fundur
9. desember 2025 kl. 16:15 - 17:15
í Miðgarði
Nefndarmenn
Goran Basrak aðalmaður
Nejra Mesetovic formaður
Bartek Andresson Kass aðalmaður
Maciej Rózanski aðalmaður
Starfsmenn
Anna Birna Elvarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Anna Birna Elvarsdóttir verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Skaftfellingur
Málsnúmer 202509069
Atvinnu- og menningarmálanefnd sveitarfélagsins óskaði eftir því á fundi sínum 22. október að starfsmaður hennar kynni fyrir fjölmenningarráði útgáfu Skaftfellings sem fyrirhuguð er árið 2026 og óska eftir virkri þátttöku ráðsins.
Fjölmenningarráð tók vel í hugmyndir atvinnu- og menningarmálanefndar um að hafa einn kafla í næstu útgáfu Skaftfellings um fjölmenningu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Ráðinu þykir vænt um að hugsað er til þessa fjölmenna hóps í sveitarfélaginu og er starfsmanni ráðs falið að vinna frekar í málinu.
2.
Framtíðarsýn um málefni aldraðra 2026-2030
Málsnúmer 202412045
Frá því í vor hefur verið unnið að gerð framtíðarsýnar í málefnum aldraðra fyrir árin 2026-2034 í Sveitarfélaginu Hornafirði. Haldnar voru vinnustofur í þéttbýlinu í apríl og maí, niðurstöður þeirra lagðar fyrir íbúaráð í dreifbýli og haldin voru opin hús í félagsheimilum í dreifbýlinu dagana 9.-11. september. Nú liggja fyrir drög að stefnunni sem byggja á þeirri vinnu sem hefur farið fram og lagðar eru fyrir fastanefndir sveitarfélagsins til kynningar og umsagnar.
Fjölmenningarráð gerir engar athugasemdir við stefnuna sjálfa. Ráðið bætir þó við að það myndi vilja sjá slíka stefnu fyrir erlenda íbúa í framtíðinni.
3.
Fjölmenning í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 202110002
Farið var yfir stöðu túlkaþjónustu í boði í sveitarfélaginu.
Rætt var um túlkaþjónustu í boði í sveitarfélaginu og hvað er hægt að gera til að efla hana frekar.