Fara í efni

Fjölmenningarráð

27. fundur
17. febrúar 2026 kl. 16:15 - 17:30
í Miðgarði
Nefndarmenn
Goran Basrak aðalmaður
Nejra Mesetovic formaður
Matsupha Brynjulfsson aðalmaður
Bartek Andresson Kass aðalmaður
Maciej Rózanski aðalmaður
Starfsmenn
Anna Birna Elvarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Anna Birna Elvarsdóttir verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Hornafjörður náttúrulega
Málsnúmer 202301036
Kynningu og samráði vegna endurskoðaðrar stefnu sveitarfélagsins, Hornafjörður Náttúrulega!, er nú lokið eftir fjögurra vikna kynningar- og umsagnaferli. Lagt fram til umræðu og umfjölunnar.
Ráðið er ánægt með stefnuna og fagnar því að hún skuli vera þýdd yfir á fleiri tungumál en hafa skal í huga að ganga úr skugga um að hægt sé að þýða á önnur tunugmál með hjálp þýðingarforrita á borð við "google translate".
2.
Barna og ungmennaþing 2025
Málsnúmer 202504082
Þann 18. nóvember var haldið Barna- og ungmennaþing á Hornafirði, þar sem yfir 300 börn og ungmenni tóku þátt. Grunnskólar sveitarfélagsins og framhaldsskólinn tóku þátt, ásamt fulltrúum úr atvinnulífinu og RÍN-hópum sem kynntu sínar nálganir á þeim málstofum sem voru til umfjöllunar. Einnig tók elsti árgangur leikskólanna þátt og fór yfir málin.Grunnniðurstöður þingsins voru kynntar tveimur dögum síðar eða þann 20.nóvember, en Ungmennaráð hefur óskað eftir því að starfsfólk fræðslusviðs kynni nánari niðurstöður fyrir öllum ráðum, fastanefndum og starfsstöðvum sveitarfélagsins.
Fjölmenningarráð þakkar fyrir flotta samantekt og hvetur stjórnendur hér í Sveitarfélaginu að lesa samantektina og taka hugmyndirnar til sín, enda nóg af flottum athugasemdum þarna. Ráðið bendir á að það er viljugt til að hjálpa með framkvæmdir einhverra hugmyndanna sé óskað eftir því.
3.
Skaftfellingur
Málsnúmer 202509069
Farið var yfir drög kafla tileinkuðum fjölmenningu í nýjustu útgáfu Skaftfellings, sem kemur út seinna á árinu. Einnig var rætt um stöðuna varðandi efni í kaflanum frá innflytjendum sem hafa búið í Sveitarfélaginu Hornafirði, sem ritnefnd Skaftfellings kallaði sérstaklega eftir.
Ráðinu lýst vel á drögin og hlakkar til að sjá kláraða útgáfu. Ritstjórn Skaftfellings óskaði eftir að fá til sín sögur frá íbúum af erlendum uppruna og hefur verið auglýst eftir sögum á netinu. Ráðið hvetur þau sem kunna að þekkja einstaklinga með áhugaverðar sögur að hafa samband við verkefnastjóra fjölmenningar.
4.
Landneminn samfélagsfræðsla
Málsnúmer 202402125
Styrkur sem fékkst fyrir þýðingu námsefnis frá Landnemanum yfir á tunugmálið pashto. Ráðinu voru sýnd myndböndin.
Ráðið fagnar þessu og felur starfsmanni ráðs til að fylgja verkefninu eftir.
5.
Fjölmenningarbíó
Málsnúmer 202602085
Rætt var enn frekar um fjölmenningarbíó, líkt og haldið var á síðasta ári. Gengu viðburðirnir þá gífurlega vel fyrir sig, og gaman væri að endurtaka leikinn.
Ráðinu finnst frábært að geta haldið áfram með þessa skemmtilegu viðburði og felur starfsmanni ráðs að vinna frekar í verkefninu.