Fjölmenningarráð
28. fundur
14. apríl 2026
kl.
16:15
-
18:00
í Miðgarði
Nefndarmenn
Goran Basrak
aðalmaður
Nejra Mesetovic
formaður
Matsupha Brynjulfsson
aðalmaður
Bartek Andresson Kass
aðalmaður
Maciej Rózanski
aðalmaður
Starfsmenn
Anna Birna Elvarsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Anna Birna Elvarsdóttir
verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Endurnýjun jafnréttisáætlunar 2027-2031
Jafnréttisáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar rennur út í lok árs. Verkefnastjóri fjölmenningar, inngildingar- og jafnréttismála vinnur nú að uppfærslunni og leitar álits fjölmenningarráðs varðandi hvað má bæta.
Ráðið fór yfir minnisblaðið og kom með viðeigandi athugasemdir sem starfsmaður vinnur áfram.
2.
Styrkumsóknir fjölmenningarráðs
Ráðið sótti um styrk frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu til viðburðarhalds nýlega, í samvinnu með FAS og Sundlaug Hafnar. Þar sem umsóknin var unnin og send á milli funda ráðsins, var ráðinu kynnt umsóknin.
Ráðið ræddi umsóknina og hugmyndina, sem hljómar mjög skemmtileg. Ráðið vonar að það fái styrkinn og felur starfsmanni að vinna frekar í verkefninu.
3.
Fjölmenningarbíó
Stefnt er á að fara aftur af stað með fjölmenningarbíóin núna í haust. Skipulagning viðburðanna var rædd frekar.
Rætt var um hvaða kvikmyndir stefnt er á að sýna og þær leiðir sem hægt er að fara að því. Starfsmaður vinnur áfram að málinu.
4.
Sveitarstjórnarkosningar 2026
Líkt og flestir íbúar vita styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar. Fjölmenningarráð ræðir sérstaklega um mikilvægi þess að minna erlenda íbúa sveitarfélagsins á réttindi sín, þar á meðal kosningarétt, og hvetja þau til að kynna sér málin vel og taka virkan þátt í lýðræðinu með því að nýta kosningarrétt sinn.
Fjölmenningarráð ræddi mikið komandi kosningar og féllst á að eitt það allra mikilvægasta er að fólk viti hvort þau geti kosið, hvar á að kjósa og hvenær á að kjósa. Allir eiga rétt á að geta tekið þátt í að móta hvernig samfélagið okkar á að vera. Ráðið vill koma á framfæri að hægt er að athuga hvort einstaklingur sé með kosningarrétt á þessum hlekk ásamt fleiri upplýsingum um sveitarstjórnarkosningar almennt:https://island.is/en/p/municipal-elections-2026
5.
Fjölmenning í Sveitarfélaginu Hornafirði
Tölur erlendra íbúa 2026 voru teknar saman nýlega og farið var yfir þær tölur.
Farið var yfir tölfræði varðandi íbúa sveitarfélagsins. Tölurnar eru áhugaverðar og aukning hefur verið í íbúafjölda að erlendum uppruna sem helst í hendur við uppbyggingu á svæðinu.