Fjölmenningarráð
3. fundur
8. febrúar 2022
kl.
16:15
-
18:10
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Nejra Mesetovic
formaður
Goran Basrak
aðalmaður
Bartek Andresson Kass
aðalmaður
Matsupha Brynjulfsson
aðalmaður
Ann Marie-Louise S Johansson
aðalmaður
Starfsmenn
Hildur Ýr Ómarsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Hildur Ýr Ómarsdóttir
verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Fjölmenning - stefnumótun
Við höldum áfram að ræða hvaða leið við viljum fara varðandi stefnumótun. Viljum við fara í heildarstefnumótun og móta mannréttindastefnu með aðgerðaráætlun í samvinnu við önnur svið sveitarfélagsins eða viljum við móta fjölmenningarstefnu? Matthildur bæjarstjóri kemur inn á fundinn til að ræða ferlið í kringum heildarstefnumótun sveitarfélagins og aðgerðaráætlunina.
Farið var yfir misjafnar leiðir stefnumótunar, bæði var rætt um heildarstefnumótun og mótun minni og afmarkaðri stefna. Rætt um leið sem verið er að fara á Norðurlandi eystra þar sem sveitarfélögin á svæðinu hafa sameinast um mótun fjölmenningarstefnu fyrir allt svæðið. Starfsmaður frá SSNE stýrir vinnunni og heldur utan um verkefnið.
Kötlusetur framkvæmdi rannsókn árið 2021 á upplifun íbúa af erlendum uppruna á því að búa í sveitarfélögunum sem staðsett eru á svæðinu frá Rangárþingi Eystra að Hornafirði. Rætt um hvort þessi svæði gætu sameinast um stefnumótun undir handleiðslu verkefnisstjóra frá SASS. Niðurstöður skýrslunar mætti nota til að útbúa aðgerðaráætlun og svo mætti leggja rannsóknina fyrir aftur að x tíma liðnum til að mæla árangur.
Ákveðið var að kanna áhuga SASS á verkefninu sem og þeirra sveitarfélaga sem rannsókn Kötluseturs náði yfir. Ákveðið að skoða mótun mannréttindarstefnu í haust.
Matthildur bæjarstjóri kom inn á fundinn og upplýsti um vinnuna á bak við mótun heildarstefnunnar Hornafjörður náttúrulega.

2.
Börn og foreldrar af erlendum uppruna
Erindi sem barst ráðinu frá foreldri af erlendum uppruna verður tekið fyrir og fundargerð frá fundi verkefnisstjóra fjölmenningar og fræðslustjóra kynnt og rædd.
Ábendingar og fyrirspurn frá foreldri af erlendum uppruna tekin fyrir, liðum 1, 2 og 4 vísað áfram á fræðslu- og tómstundanefnd, lið 3 vísað áfram til atvinnu- og menningarmálanefndar. Fjölmenningarráð fagnar erindinu og þakkar fyrir góðar ábendingar.
Fundargerð frá fundi fræðslustjóra og verkefnisstjóra fjölmenningar um börn og foreldra af erlendum uppruna lögð fram til kynningar og ráðið upplýst um að verkefnisstjóri fjölmenningar eigi fund með skólastjórnendum og fræðslustjóra 17. febrúar til að ræða þau atriði sem koma fram í fundargerð.

3.
Kosningaréttur erlendra íbúa
Fyrirspurn barst frá meðlimi fjölmenningarráðs varðandi þátttöku íbúa með erlendan ríkisborgararétt í sveitarstjórnarkosningum. Á síðasta fundi ráðsins fengum við fræðslu um rétt íbúa með erlent ríkisfang til að kjósa, hvernig getum við gert þann rétt sýnilegri og stuðlað að aukinni þátttöku?https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/kjorskra/erlendir-rikisborgarar/
Samkvæmt Hagstofu Íslands hafa upplýsingar um kosningaþáttöku íbúa með erlendann ríkisborgararétt ekki verið teknar saman hingað til. Á síðasta fundi ráðsins fengum við upplýsingar um það frá forstöðumanni Fjölmenningarseturs að þessi hópur væri oft illa upplýstur um rétt sinn til að kjósa auk þess sem þeir vissu lítið um stefnuskrár þeirra flokka sem væru í framboði.
Ákveðið að auglýsa vel kosningarétt meðal erlendra íbúa ásamt því að virkja framboðin til að muna eftir íbúum af erlendum uppruna og huga að því að hafa málefni þessa hóps á sinni stefnuskrá. Ráðið ætlar að fara í hugmyndavinnu í sameiningu, rætt um gerð plakata með slagorðum t.d.

4.
Upplýsingar á heimasíðu á ensku
Upplýsingar á heimasíðu hafa verið uppfærðar og verða lagðar fram til kynningar.
Uppfærðar upplýsingar á heimasíðu lagðar fram til kynningar.
5.
Upplýsingabréf til erlendra íbúa
Upplýsingabréf hafa verið uppfærð út frá ábendingum fjölmenningarráðs og verða lögð fram til kynningar.
Uppfærðir bæklingar lagðir fram til kynningar.
6.
Skýrsla um aðlögun erlendra íbúa frá 2021
Skýrsla Kötluseturs um rannsókn sem gerð var meðal erlendra íbúa á svæðinu Hornafjörður - Rangárþing eystra liggur fyrir og verður lögð fram til kynningar. Í henni er að finna gagnlega punkta um það sem betur megi fara.
Skýrsla lögð fram til kynningar, ráðið hvetur starfsfólk sveitarfélagsins og meðlimi nefnda og ráða til að kynna sér innihald hennar.