Fara í efni

Fjölmenningarráð

6. fundur
22. ágúst 2022 kl. 16:15 - 17:45
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Goran Basrak aðalmaður
Nejra Mesetovic aðalmaður
Bartek Andresson Kass aðalmaður
Nikolina Tintor 1. varamaður
Starfsmenn
Hildur Ýr Ómarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Hildur Ýr Ómarsdóttir verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Fjölmenning - stefnumótun
Málsnúmer 202112017
Ráðið hefur skoðað tvær leiðir varðandi stefnumótun í málaflokknum, fjölmenningarstefnu og mannréttindastefnu. Mótun heildstæðrar mannréttindastefnu er á málaskrá nýs meirihluta.
Fjölmenningarráð fagnar því að myndun mannréttindarstefnu sé í málefnasamningi nýs meirihluta og óskar eftir upplýsingum frá bæjarráði um hvenær sú vinna eigi að fara af stað og með hvaða hætti.
2.
Börn og foreldrar af erlendum uppruna
Málsnúmer 202202015
Erindi foreldris af erlendum uppruna varðandi aðstöðu fyrir foreldra til að koma saman með börnin sín yfir vetrartímann var tekið upp í atvinnu- og menningarmálanefnd. Forstöðumaður menningarmiðstöðvar fól verkefnastjóra fjölmenningarmála, starfsmanni bókasafns og foreldri að ákveða í sameiningu daga til að hittast á bókasafninu. Fundað hefur verið með starfsmanni bókasafns og foreldri og hugmyndir að útfærslu ræddar.
Eftir samtal við foreldri og starfsmann bókasafns kviknaði sú hugmynd að foreldri af erlendum uppruna héldi utan um viðburði á bókasafninu annan hvern laugardag yfir vetarartímann gegn þóknun. Um væri að ræða minni viðburði fyrir öll börn og foreldra þeirra þar sem megin markmiðið væri að búa til vettvang til samskipta. Erindi vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar.
3.
Móttökusamtal í leik- og grunnskóla
Málsnúmer 202207048
Uppsetning móttökusamtals verkefnastjóra fjölmenningarmála og drög að móttökuáætlun Leikskólans Sjónarhóls lagt fram til umsagnar.
Móttökuáætlun leikskólans og uppsetning móttökusamtals var tekin til umfjöllunnar í ráðinu. Starfsmanni ráðsins falið að ræða ábendingar við yfirmenn leikskóla. Rætt um að fá ábendingar frá foreldrum af erlendum uppruna sem setið hafa móttökusamtöl þegar reynsla er komin á samtölin.
4.
Frístundastyrkur - upplýsingar til foreldra
Málsnúmer 202207049
Drög að leiðbeiningum varðandi umsókn um frístundastyrk lögð fram til umsagnar.
Drög að leiðbeiningum varðandi nýtingu frístundastyrks lögð fram til umræðu. Ráðið leggur til að leiðbeiningarnar verði settar á heimasíðu á ensku sem síða en ekki sem pdf svo hægt sé að nota google translate flipann.
5.
Móttaka flóttafólks
Málsnúmer 202203054
Verkefnastjóri fjölmenningarmála upplýsir um stöðu mála.
Starfsmaður ráðsins upplýsti um stöðu mála. Fjölmenningarsetur sem heldur utan um móttöku flóttafólks hefur fengið upplýsingar frá sveitarfélaginu varðandi íbúð sem er laus og er ætluð fjölskyldu á flótta.