Fara í efni

Fjölmenningarráð

7. fundur
11. október 2022 kl. 16:15 - 18:00
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Goran Basrak aðalmaður
Nejra Mesetovic aðalmaður
Matsupha Brynjulfsson aðalmaður
Ann Marie-Louise S Johansson aðalmaður
Nikolina Tintor 1. varamaður
Starfsmenn
Hildur Ýr Ómarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Hildur Ýr Ómarsdóttir verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Siðareglur kjörinna fulltrúa 2022
Málsnúmer 202208029
Bæjarstjórn lagði til að siðareglurnar verði teknar upp til endurskoðunar í nefndum og bæjarráði
Siðareglur kjörinna fulltrúa lagðar fram til kynningar. Ráðið leggur til að upplýsingar séu settar beint inn á heimasíðu en ekki eingöngu í pdf formi svo hægt sé að nýta google translate flipann.
2.
Fjölmenning - stefnumótun
Málsnúmer 202112017
Tekin hefur verið ákvörðun um að setja saman vinnuhóp um myndun mannréttindastefnu. Formaður ráðsins mun upplýsa um stöðu mála.
Stofnaður hefur verið vinnuhópur við mótun mannréttindarstefnu og eru starfsmaður og formaður fjölmenningarrráðs hluti af þeim hóp. Starfsmaður og formaður munu koma með mál varðandi stefnumótunina inn á fund fjölmenningarráðs svo ráðið geti komið með ábendingar varðandi þann hluta sem snýr að fjölmenningu. Fjölmenningarráð fagnar því að fara eigi af stað með stefnumótun í mannréttindamálum og vonar að vinnan hefjist sem fyrst.
3.
Börn og foreldrar af erlendum uppruna
Málsnúmer 202202015
Samþykkt hefur verið að halda samverustundir fyrir börn og foreldra á bókasafninu annan hvern laugardag í vetur. Starfsmaður ráðs mun upplýsa um stöðu mála og fyrirkomulag samverustunda.
Fjölmenningarráð fagnar því að tekin hafi verið ákvörðun um að halda samverustundir á bókasafninu að ósk foreldra af erlendum uppruna. Foreldri af erlendum uppruna mun taka að sér að stýra viðburðinum í vetur og fer starfið af stað 22. október. Ráðið hvetur alla foreldra og börn til að mæta í samveruna þar sem ýmislegt spennandi verður í boði t.d. föndur, spil, leikir o.fl Viðburðurinn er kjörinn vettangur til að rækta tengsl og skapa ný.
4.
Móttaka flóttafólks
Málsnúmer 202203054
Starfsmaður ráðsins kynnir nýja samninga um móttöku flóttafólks fyrir ráðinu og greinir frá stöðu mála varðandi væntanlega móttöku.
Verið er að bíða eftir að nýjir samningar um samræmda móttöku verði tilbúnir. Sveitarfélagið hefur þó gefið það út að það sé tilbúið að taka á móti fjölskyldum í tvær íbúðir þrátt fyrir að samningar séu ekki tilbúnir. Fjölmenningarsetur vinnur að því að para fjölskyldur við sveitarfélögin og er í sambandi við verkefnastjóra fjölmenningarmála hvað það varðar.
5.
Fjölmenning í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 202110002
Starfsmaður og formaður ráðs munu fara yfir verkefnalista ársins 2022 og óska eftir tillögum að verkefnum fyrir árið 2023.
Ákveðið að fara yfir skýrslu Kötluseturs fyrir næsta fund og ræða hugmyndir að verkefnum fyrir árið 2023.