Fræðslu- og frístundanefnd
104. fundur
20. september 2023
kl.
16:15
-
19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir
formaður
Þóra Björg Gísladóttir
varaformaður
Steindór Sigurjónsson
1. varamaður
Kristján Örn Ebenezersson
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir
sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Heimsókn í Hofgarð
Fundurinn var haldinn í Hofgarði þar sem Áróra Gústafsdóttir skólastjóri tók á móti fundarfólki og sýndi skólann.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar starfsfólki í Hofgarði fyrir góðar móttökur. Það er auðsjáanlega verið að leggja mikinn metnað í skólastarfið sem er ómetanlegt fyrir íbúa í Öræfum og sveitarfélagið í heild.
2.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 83
Fundargerð lögð fram og samþykkt.
3.
Ungmennaþing 2023
Þann 8. september var ungmennaþing haldið í Nýheimum með þátttöku nemenda í 8.-10. bekk Grunnskóla Hornafjarðar og nemenda FAS auk þess sem reynt var að ná til ungs fólks sem er á vinnumarkaði.
Umræðuefnin þingsins voru fjögur.
1. Hvað er gott á Höfn?
2. Hvað má bæta? Hvað vantar?
3. Hvernig bætum við samfélagið?
4. Hvernig virkjum við fjölbreytilegastan hóp ungmenna til að taka þátt í samfélaginu.
Búið er að taka saman þá punkta sem komu frá hópum varðandi spurningar 1 og 2 og voru þeir lagðir fyrir nefndina. Á næstu vikum verða allar niðurstöðurnar kynntar betur fyrir nefndum, þingfólki og bæjarbúum. Fræðslu- og frístundarnefnd fagnar ungmennaráðsþinginu og þakkar ungmennaráði og starfsmönnum þingsins fyrir framlag þeirra. Nefndarfólk hlakkar til að sjá lokaniðurstöður og vill brýna sig og aðra til að hlusta á unga fólkið okkar og taka tillit til skoðana þess í ákvarðanatöku.

4.
Lýðheilsuráð
Fundargerð lýðheilsuráðs lögð fram til kynningar.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerð lýðheilsuráðs. Jafnframt hvetur nefndin ráðið til að halda áfram við að móta lýðheilsustefnu fyrir sveitarfélagið og stuðla að hverskonar forvarnarstarfi eins og það hefur verið að gera.
5.
Íslenska Æskulýðsrannsóknin 2023 Vorönn
Íslenska æskulýðsrannsóknin var lögð fyrir á þessu ári og niðurstöður hennar hafa verið að berast, þær síðustu komu fyrr í þessum mánuði.
Grunnskóli Hornafjarðar kemur almennt vel út í samanburði við landið en þessi könnun líkt og aðrar eru áminning til okkar allra að vera stöðugt á tánum þegar kemur að gæðum skólastarfs, forvörnum og því að vera barnvænt sveitarfélag.
6.
Leikskólinn - starfshópur um leikskólamál
Búið er að manna starfshóp um leikskólamál og hefur hann fundað einu sinni. Í hópunum sitja Þóra Björg Gísladóttir f.h. sjálfstæðisflokks sem einnig er formaður hópsins, Kristján Örn Ebenezarsson f.h. Kex, Gunnhildur Imsland f.h. framsóknar, Kolbrún Rós Björgvinsdóttir f.h. foreldra, Maríanna Jónsdóttir f.h. leikskólastjóra og Svava Kristín Þorsteinsdóttir f.h. starfsmanna á leikskólanum. Starfsmaður hópsins er Þórgunnur Torfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs.
Í samræmi við erindisbréf hópsins verður fjallað um mörg mál á þessum vettvangi. Fræðslu- og frístundanefnd verður upplýst um þau málefni sem brenna á starfshópnum á mánaðarlegum fundum nefndarinna og henni þar með gefið tækifæri til að styðja við starf hópsins.
7.
Leikskólaráð
Leikskólaráð er skipað deildarstjórum og stjórnendum á leikskólanum Sjónahóli auk sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs sem er starfsmaður hópsins. Leikskólaráð starfar fram til 1. febrúar og mun vinna að því að styrkja og efla innra starf leikskólans og gera leikskólann að eftirsóknarverðari vinnustað. Leikskólaráð hefur fundað þrisvar sinnum.
Það er samdóma álit leikskólaráðs að vinnan fari vel af stað. Mörg mál hafa verið rædd og fyrsta málið sem farið hefur í umræðu hjá öllu starfsfólki er tungumálastefna sem leikskólinn er að setja sér. Í henni felst m.a. að samfélagið sé lykillinn að því að læra íslensku. Að alltaf sé byrjað að nota íslensku en þegar börn eða starfsmenn skilja ekki þá sé líka sjálfsagt að nota önnur tungumál. Þá er í stefnunni lögð áhersla á að starfsmenn sem ekki eiga íslensku að móðurmáli, leggi sig fram við að læra íslensku meðan þeir starfa á leikskólanum og að sama skapi leggi íslenskir starfsmenn sig fram við að kenna þeim íslensku en taki líka tillit til þess að stundum þarf að nota ensku eða jafnvel önnur tungumál.
Fram kom að starfsfólk leikskóla veltir fyrir sér hvort það þurfi að greiða fyrir skráningardaga hjá sínum börnum ef það þarf að vinna? Nú styttist í fyrstu skráningardagana og mikilvægt að starfsfólk fái upplýsingar um þetta atriði. Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að starfsmenn þurfi ekki að greiða fyrir skráningardaga sinna barna ef þeir þurfa að vinna á skráningardögum og vísar málinu til bæjarráðs.
Fræðslu- og frístundanefnd lýsir ánægju sinni með störf leikskólaráðs og vill að sveitarfélagið skoði hvernig það geti stutt betur við íslenskunám starfsmanna af erlendum uppruna.

8.
Námsvist utan lögheimilissveitarfélags
Bókun fundar færð í trúnaðarbók.
9.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs 2023
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs lagðar fyrir nefndina.
Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að gjaldskrár skóla hækki skv. vísitölu og miðað verði við skólaárið. Þetta eru gjaldskrár leikskóla, Kátakots, skólamáltíðir og Tónskólans. Gjaldskrár Vörhúss, sundlaugar og dagforeldra verða teknar fyrir á næsta fundi.
10.
Fjárhagsáætlun f.2024 - Fræðslu- og frístundasvið
Vinna við fjárhagsáætlun er hafin og eiga forstöðumenn og sviðsstjórar að skila áætlunum inn til fjármálastjóra 27. september.
Fjárhagsrammar ræddir.