Fara í efni

Fræðslu- og frístundanefnd

107. fundur
13. desember 2023 kl. 16:15 - 19:15
Sindrabær
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir formaður
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður
Kjartan Jóhann Einarsson 2. varamaður
Kristján Örn Ebenezersson aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Heimsókn í Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu
Málsnúmer 202312042
Fræðslu- og frístundanefnd fundar í Sindrabæ.
Jóhann Morávek skólastjóri Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu tók á móti fræðslu- og frístundanefnd og fylgdi nefndinni um húsið. Til stendur að ráðast í endurbætur á Sindrabæ á næsta ári og verður það kærkomið eftir margra ára frestun. Starfsfólk Tónskólans er reiðubúið að færa sig og vinna nánast hvar sem er á meðan á framkvæmdum stendur.
2.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 86
Málsnúmer 2311023F
Emil fylgdi fundargerðinni úr hlaði. Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerðina.
3.
Íþróttahéruð - kynning
Málsnúmer 202311107
Stefnumótun stjórnvalda felur í sér aukna samvinnu ÍSÍ og UMFÍ. Það mun hafa áhrif á USÚ og aðaldarfélög þess. Fulltrúar USÚ komu á fundinn og skýrðu frá þessum breytingum.
Þessi stefnumótun hefur í för með sér breytingu á því fjármagni sem USÚ hefur til úthlutunar til aðildarfélaga en á móti kemur starfsmaður inn til að styðja við starf aðildarfélaganna. Stefnt er að átta starfsstöðum á landinu og verða tveir starfsmenn á hverri. Þessi breyting gengur ekki í gegn fyrr en næsta sumar og stefnt er að því að starfstöðvarnar hefji allar starfsemi í kringum mitt næsta ár. Mikilvægt er að líta á þessar breytingar sem tækifæri til að efla barna og ungmennastarf og efla íþróttalíf í héraði. Fulltrúar USÚ leggja áherslu á að íþróttahéruð hafi mikilvægu hlutverki að gegna og mikilvægt að nýta þau tækifæri sem gefast til hins ítrasta.
4.
Mannréttindastefna
Málsnúmer 202301007
Bæjarráð vísaði mannréttindastefnunni til umsagnar í nefndum og ráðum sveitarfélagsins.
Fræðslu- og frístundanefnd gerir ekki athugasemd við mannréttindastefnuna sem slíka og fagnar því að hún sé komin fram. Bent var á orðalag á einum stað og mun formaður koma þeirri athugasemd til skila. Einnig var bent á að betra hefði verið að einhver frá stýrihópi um mannréttindastefnu hefði fylgt málinu eftir í nefndinni. Nefndin hvetur til þess að stefnan sé kynnt vel fyrir forstöðumönnum og starfsfólki sveitarfélagsins. Einnig hvetur nefndin til þess að gerð verði aðgerðaráætlun með stefnunni og hún kostnaðargreind þar sem þörf er á.
5.
Málstefna
Málsnúmer 202309020
Bæjarráð vísaði málstefnunni til umsagnar í nefndum og ráðum sveitarfélagsins.
Fræðslu- og frístundanefnd gerir ekki athugasemd við málstefnuna en hvetur til þess að hún sé kynnt vel fyrir forstöðumönnum og starfsfólki sveitarfélagsins. Auk þess hvetur fræðslu- og frístundanefnd til þess að gerð verði áætlun um það hvernig á að virkja hana og að hún kostnaðargreind.
6.
Aðgerðaráætlun 2023 Barnvænt sveitarfélag
Málsnúmer 202312025
Stýrihópur um Barnvænt sveitarfélag vísar aðgerðaráætluninni til umsagnar í nefndum og ráðum sveitarfélagsins.
Fræðslu- og frístundanefnd gerir ekki athugasemd við aðgerðaráætlun Barnvæns sveitarfélags og óskar stýrihóp og starfsmanni til hamingju með verkið. Það er það mikilvægt að fylgja aðgerðaráætluninni vel eftir og leggja til það fjármagn sem þarf svo hægt verði að framfylgja henni.
7.
Útboð á skólaakstri 2024-2028
Málsnúmer 202312026
Farið yfir forsendur útboðs.
Undirbúningur fyrir útboðið er langt kominn og mun Ríkiskaup nú taka við boltanum.
8.
Leikskólinn - starfshópur um leikskólamál
Málsnúmer 202307036
Málefni starfshóps um leikskólamál.
Þórgunnur fór yfir samantekt sem verið er að vinna varðandi atriði sem starfshópurinn telur mikilvæg. Framundan er að forgangsraða atriðum, kostnaðarmeta og leggja svo fram drög að lokaskýrslu starfshóps á næsta fundi nefndarinnar.
9.
Ábending til sveitafélaga um mikilvægi kynja- og jafnréttissjónarmiða
Málsnúmer 202311090
Ábending frá jafnréttisstofu lögð fyrir.
Fræðslu og frístundanefnd fór yfir málið og tengdi m.a. við mannréttindastefnuna sem var verið að samþykkja. Mikilvægt er að sveitarfélagið móti sér stefnu um það hvernig það ætlar að jafnréttismeta aðgerðir sínar.