Fræðslu- og frístundanefnd
114. fundur
19. júní 2024
kl.
16:15
-
19:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir
formaður
Ingólfur Guðni Einarsson
1. varamaður
Steindór Sigurjónsson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
1. varamaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir
sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 92
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerðina.
2.
HeimaHöfn - Ungt fólk og efling byggða
Verkefnið "HeimaHöfn " er eins árs þróunarverkefni á vegum Nýheima þekkingarseturs í samstarfi og með styrk frá Sveitarfélaginu Hornafirði. Meginmarkmið verkefnisins er að efla samkeppnishæfni og aðráttarafl Hornafjarðar sem búsetukost framtíðarinnar. Á fundinum ætlar fulltrúi verkefnisins að kynna það fyrir fræðslu- og frístundanefnd.
Heimahöfn er verkefni unnið í anda verkefnis í Nordfjord í Noregi og byggir á því að gera sveitafélagið aðlaðandi fyrir ungt fólk svo það vilji búa hér. Unga fólkið er lykillinn að velgengni í framtíðinni hvort sem er hér eða annarsstaðar og mikilvægt að stuðla að jákvæðri sýn ungmenna á tækifærum í sveitarfélaginu. Því lengur sem ungt fólk dvelur í heimabyggð og því jákvæðari upplifun sem það hefur því líklegra er að það vilji búa hér. HeimaHöfn leggur áhersla á að kynna sveitarfélagið fyrir ungu fólki, möguleikum og tækifærum sem hér leynast og liggja víða.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar Kristínu Völu fyrir góða kynningu. HeimaHöfn er spennandi verkefni sem nefndin styður heilshugar og hlakkar til að fylgjast með áframhaldinu. Mikilvægt er að gefa því tíma, svigrúm og fjármagn til að þróast, komast á flug og haldast á flugi.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar Kristínu Völu fyrir góða kynningu. HeimaHöfn er spennandi verkefni sem nefndin styður heilshugar og hlakkar til að fylgjast með áframhaldinu. Mikilvægt er að gefa því tíma, svigrúm og fjármagn til að þróast, komast á flug og haldast á flugi.
3.
Starfsáætlun Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu 2024-2025
Starfsáætlun Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu lögð fram og samþykkt. Hægt verður að nálgast hana á heimasíðu Tónskólans. Fræðslu- og frístundanefnd óskar starfsfólki Tónskólans til hamingju með að lokaáfanga á breytingum í Sindrabæ skuli vera farinn af stað. Það verður spennandi að sjá afraksturinn en stefnt er að því að ljúka þeim sumarið 2025.
4.
Starfsáætlun leikskólans Sjónarhóls 2024-2025
Starfsáætlun Sjónarhóls lögð fram og samþykkt. Hægt verður að nálgast hana á heimasíðu leikskólans. Búið er að ráða verkefnastjóra við leikskólann næsta vetur en það var hluti af þeim aðgerðum sem starfshópur um leikskólamál lagði til.
5.
Starfsáætlun Grunnskóla Hornafjarðar 2024-2025
Starfsáætlun Grunnskóla Hornafjarðar lögð fram og samþykkt. Hægt verður að nálgast hana á heimasíðu skólans. Ákveðið var að fresta seinkun á skólabyrjun sem hvatt var til í aðgerðaráætlun Barnvæns sveitarfélags. Fræðslu- og frístundanefnd hvetur þó til þess að halda þeirri umræðu á lofti og fara af stað með seinkunina að ári. Í haust verður unnið með smátölvulausan skóla og það er ágætis verkefni til að byrja með.
6.
Starfsáætlun leik- og grunnskólans í Hofgarði 2024-2025
Starfsáætlun leik- og grunnskólans í Hofgarði lögð fram og samþykkt.
7.
Ársskýrsla forstöðumanns Þrykkjunnar júní 2024
Ársskýrsla forstöðumanns Þrykkjunnar tekin til umræðu og samþykkt.
8.
Ársskýrsla verkefnastjóra á fræðslu- og frístundasviði júní 2024
Ársskýrsla verkefnastjóra á fræðslu- og frístundasviði tekin til umræðu og samþykkt.
9.
Vallarstjórn 2024
Fjallað um fundargerð vallarstjórnar frá 29. maí.
Fræðslu- og frístundanefnd fjallaði um fundargerðina. Hvatti til þess að fengið yrði leyfi til að endurnýja ærslabelginn og setja grindverk í kring sem nýtist þá líka sem sæti. Einnig var óskað eftir því að setja sand í strandblaksvöllinn og að fengið yrði leyfi til að gróðursetja tré í kringum blakvellina til að gera skjól. Ljóst er að það er farið að sjá á ýmsu á miðsvæðinu en ákveðið að bíða eftir ákvörðun um íþróttahús áður en farið verður í endurnýjun á svæðinu.
10.
Útboð á skólaakstri 2024-2028
Samið hefur verið um skólaakstur í sveitarfélaginu næstu fjögur árin. Samið var við FHM 785 um akstur í Öræfum og sundakstur. Samið var við Fallastakk (Glacier Journey) um akstur í Suðursveit, á Mýrar og í Nesin. Auk þess var samið við Fallastakk um frístunda- og fimleikaakstur.
Lagt fram til kynningar.
11.
Ársskýrsla sviðsstjóra á fræðslu- og frístundasviði - júní 2024
Ársskýrsla forstöðumanns tekin til umræðu og samþykkt.