Fræðslu- og frístundanefnd
126. fundur
11. júní 2025
kl.
14:00
-
17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir
formaður
Þóra Björg Gísladóttir
varaformaður
Steindór Sigurjónsson
aðalmaður
Kristján Örn Ebenezersson
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir
sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 103
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerðina.
2.
Ársskýrsla Björgunarfélags Hornafjarðar 2024
Ársskýrsla Björgunarfélags Hornafjarðar lögð fram og kynnt.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar góða skýrslu.
3.
Skyndihjálp ungbarna
Kolbrún Rós Björgvinsdóttir hefur óskað eftir því að fá að halda skyndihjálparnámskeið fyrir foreldra með stuðningi frá sveitarfélaginu.
Fræðslu- og frístundanefnd lýsir ánægju sinni með hugmyndina og telur að skyndihjálp ungbarna nýtist foreldrum vel. Málinu vísað til bæjarráðs.
4.
Starfsáætlun leik- og grunnskólans í Hofgarði 2025-2026
Starfsáætlun leik- og grunnskólans í Hofgarði lögð fram kynningar og umræðu.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir starfsáæltun Leik- og grunnskólans í Hofgarði fyrir skólaárið 2025-2026.
5.
Starfsáæltun leikskólans Sjónarhóls 2025-2026
Starfsáætlun leikskólans Sjónarhóls lögð fram til kynningar og umræðu.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir starfsáætlun Leikskólans Sjónarhóls fyrir skólaárið 2025-2026 og óskar starfsfólki og fjölskyldum til hamingju með viðbygginguna sem virðist afar vel heppnuð.
6.
Starfsáætlun Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu 2025-2026
Starfsáætlun Tónskólans lögð fram til kynningar og umræðu.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir starfsáætlun Tónskóla Austur-Skaftafellssýlsu fyrir skólaárið 2025-2026. Það verður spennandi að sjá Sindrabæ í haust þegar endurbótum verður að fullu lokið og nýjir kennarar komnir til starfa.
7.
Starfsáætlun Grunnskóla Hornafjarðar 2025-2026
Starfsáætlun Grunnskóla Hornafjarðar lögð fram til kynningar og umræðu.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir starfsáætlun Grunnskóla Hornafjarðar fyrir skólaárið 2025-2026.
8.
Lesfimi 2025
Helstu niðurstöður úr lesfimiprófum fyrir Grunnskóla Hornafjarðar kynntar.
Lestur og læsi er eitt af mikilvægustu verkefnum grunnskólans og það sem flest annað nám hvílir á. Lesfimipróf mæla fyrst og fremst hversu hratt og vel einstaklingar lesa texta án þess að hiksta og gera mistök. Eftir því sem lesfimi barna eykst þeim mun minna þurfa þau að leggja á sig við sjálfan lesturinn og geta lagt meiri orku í að skilja textann sem þau lesa. Lesfimipróf mæla því ekki lesskilning en góð lesfimi styður við lesskilning.
Niðurstöður lesfimiprófa í Grunnskóla Hornafjarðar eru aðeins undir meðatali landsins en nokkrir árgangar eru þó alveg á eða yfir landsmeðaltali. Almennt er gert ráð fyrir að 90% nemenda nái viðmiði 1 i lok skólaárs 50 prósent nái viðmiði 2 og 25% nái viðmiði 3.
Á fundinum var rætt hvernig skólinn bregst við niðurstöðum lesfimiprófa og hvernig áætlanir væru gerðar um að bæta árangurinn.
Niðurstöður lesfimiprófa í Grunnskóla Hornafjarðar eru aðeins undir meðatali landsins en nokkrir árgangar eru þó alveg á eða yfir landsmeðaltali. Almennt er gert ráð fyrir að 90% nemenda nái viðmiði 1 i lok skólaárs 50 prósent nái viðmiði 2 og 25% nái viðmiði 3.
Á fundinum var rætt hvernig skólinn bregst við niðurstöðum lesfimiprófa og hvernig áætlanir væru gerðar um að bæta árangurinn.
9.
Skólapúlsinn - 6.-10.bekkur 2024-2025
Fjallað um niðurstöður Skólapúlsins og helstu viðbrögð skólans við niðurstöðum.
Skólapúlsinn er lagður fyrir nemendur í 6. - 10. bekk. Horft er til þriggja megin áherslna, virkni nemenda í skólanum, líðan og heilsu og skóla og bekkjaranda. Ánægja nemenda með náttúrufræði er afar lítil en nemendur hafa ágætis trú á eigin námsgetu og vinnubrögð sín. Þá líður þeim almennt vel, einelti mælist með minnsta móti að þeirra áliti en ekki mælist mikil ánægja með matinn í skólanum. Að lokum samsama nemendur sig ágætlega við nemenda og kennarahópinn og telja sig ágætlega virka í náminu. Frekari niðurstöður má sjá í fylgiskjali.
10.
Skólamáltíðir útboð 2025
Í vetur voru skólamáltíðir við Grunnskóla Hornafjarðar boðnar út. Engin tilboð bárust og því standa nú yfir samningaviðræður vegna skólamáltíða við Vigdísarholt á útboðsforsendum.
Fræðslu- og frístundanefnd er ánægð með að málið sé komið í farveg og vísar málinu til bæjarráðs.
11.
Ársskýrsla verkefnastjóra á fræðslu- og frístundasviði júní 2025
Ársskýrsla verkefnastjóra á fræðslu- og frístundasviði lögð fram.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir ársskýrslu verkefnastjóra á fræðslu- og frístundasviði.
12.
Vallarstjórn 2025
Fundargerð vallarstjórnar frá í byrjun júní lög fram.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerðina. Nefndin stingur upp á nafninu Bárukot á nýja vallarhúsinu.
13.
Lýðheilsuráð 2024-2025
Fundargerði lýðheilsuráðs lögð fram til kynningar.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerðina og tekur undir eftirfarandi bókun lýðheilsuráðs, „Lýðheilsuráð lýsir undrun sinni á því að útiæfingatækin séu enn ekki komin. Nú eru liðin tvö ár og sjö
mánuðir síðan ráðið fékk það verkefni að setja fram tillögur um staðsetningu og tegundir tækja. Fjármagn var tryggt og allt átti að vera klárt. Hvar eru tækin?“ Bókuninni vísað til bæjarráðs.
mánuðir síðan ráðið fékk það verkefni að setja fram tillögur um staðsetningu og tegundir tækja. Fjármagn var tryggt og allt átti að vera klárt. Hvar eru tækin?“ Bókuninni vísað til bæjarráðs.
14.
Ársskýrsla sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs júní 2025
Ársskýrla sviðsstjóra á fræðslu- og frístundasviði lögð fram.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir ársskýrslu sviðsstjóra.
15.
Ársskýrsla forstöðumanns Þrykkjunnar júní 2025
Ársskýrsla forstöðumanns Þrykkjunnar lögð fram.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir ársskýrslu forstöðumanns Þrykkjunnar.
16.
Stjórn FabLabs
Í síðasta samning sem barna- og menntamálaráðuneytið gerði við Fablabið er kveðið á um að stjórn skuli skipuð við Fablabið. Áður hafði verið stjórn í Vöruhúsinu sem fundaði óreglulega en nú hefur verið skipuð ný stjórn í Fablab og Vöruhúsi. Formaður stjórnar er forstöðumaður Fablabsins Sindri Örn Elvarsson. Aðrir í stjórn eru skólameistari FAS Lind Völundardóttir, skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar Þórdís Þórsdóttir, sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs Þórgunnur Torfadóttir f.h. sveitarfélagsins, Nejra Mesetovic f.h. Nýheima þekkingaseturs og Lóa Auðunsdóttir f.h. mennta- og barnamálaráðuneytisisn. Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar
17.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs sem hækka 1.ág.2025
Hluti gjalskrá fræðslu- og frístundasvið hækka 1. ágúst svo sem gjaldskrá leikskóla, tónskóla og frístundar auk skólamáltíða sem verða þó áfram fríar fyrir nemendur. Fyrir liggur tillaga að þriggja prósenta hækkum í samræmi við vísitöluhækkun.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir hækkanir á gjaldskrám og vísar þeim til bæjarráðs.
18.
Bara tala
Síðasta árið hefur sveitarfélagið boðið starfsmönnum af erlendum uppruna aðgang að BARA TALA appinu sem er einfalt og þægilegt tæki til að styðja við íslenskunám fólks. Mjög góð reynsla er af þessu forriti bæði hér og annarsstaðar og nú þarf að taka ákvörðun um það hvort halda eigi áskriftinni áfram.
Fræðslu- og frístundanefnd hvetur til þess að sveitarfélagið verði áfram með áskrift af Bara tala næsta árið og vísar málinu til bæjarráðs.
19.
Sérfræðiþjónusta á fræðslu- og frístundasviði
Mál lagt fram til kynningar.
Fræðslu- og frístundanefnd vísar málinu til bæjarráðs.
20.
Samningur um talmeinafræðiþjónustu 2025
Mál lagt fram til kynningar.
Fræðslu- og frístundanefnd vísar málinu til bæjarráðs.
21.
Samningur um sálfræðiþjónustu skóla 2025-2029
Mál lagt fram til kynningar.
Fræðslu- og frístundanefnd vísar málinu til bæjarráðs.
22.
Samningur um þrif á Sjónarhóli
Þrif á leikskólanum Sjónarhóli hafa verið unnin af verktaka síðustu ár. Með tilkomu nýju deildanna þurfti að endurnýja samninginn og ákveðið var að gera það frekar en ráða inn fleira fólk í skólann. Mál lagt fram til kynningar.
Fræðslu- og frístundanefnd vísar málinu til bæjarráðs.
23.
Íslenska æskulýðsrannsóknin 2025
Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar.
Niðurstöður æskulýðsrannsóknarinnar eru nýkomnar og starfsmönnum hefur hvorki gefist tími til að kynna sér þær nér bregðast við. Einnig er vona að frekari túlkun á niðurstöðum frá Háskóla Íslands. Umræðum um niðurstöður og viðbrög frestað fram yfir sumarfrí.
24.
Íþróttamannvirki í Öræfum
Í kosningabaráttunn var ákall eftir íþróttmannvirki í Öræfum frá íbúum. Hver er staðan núna?
Fræðslu- og frístundanefnd vísar málinu til íbúaráðs Öræfinga.
25.
Orð eru ævintýri
Síðustu tvö ár hefur bókin Orð eru ævintýri verið gjöf til allra barna á Íslandi fædd árin 2018, 2019, 2020 og 2021 auk þess sem allir leikskólar fengu afhent eintök af henni ásamt spili og samtalsspjöldum að gjöf haustið 2024. Nú í ár 2025 munu öll börn fædd 2022 fá bókina afhenta. Að auki mun hver og einn leikskóli, innan hvers sveitarfélags fá að gjöf glænýja barnabók sem ber nafnið Álfakrílin sem hentar vel til að efla orðaforða barna í leikskóla og á yngsta stigi grunnskóla, sem og nemendum og kennurum sem eru að stíga sín fyrstu skref í íslensku sem öðru tungumáli. Einnig fá skólarnir að gjöf bókina Láttu mig vera - áhyggjupúkar.
Fræðslu- og frístundanefnd fagnar þessu framtaki Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Það styður við íslenskunám allra barna og líka barna af erlendum uppruna.