Fara í efni

Fræðslu- og frístundanefnd

129. fundur
8. október 2025 kl. 16:15 - 19:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir formaður
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Kristján Örn Ebenezersson aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Dagskrá
1.
Sindri 2025-2026
Málsnúmer 202508054
Það styttist í að ár verði frá undirritun metnaðarfulls samnings við umf. Sindra. Fulltrúar úr aðalstjórn umf. Sindra mættu á fundinn og fóru yfir stöðuna hjá félaginu.
Stjórn Sindra fór yfir stöðuna hjá félaginu en starfið hefur verið blómlegt á árinu. Ekki hefur þó tekist að ráða framkvæmdastjóra en um áramót er von á starfsmanni sem getur tekið hluta af verkefnum framkvæmdastjóra, allt að 50%. Eins og er þá er starfið á "save mode" og reynt er að úthýsa sem flestum verkefnum. Endanleg útfærsla á starfi framkvæmdastjóra er ekki ljós og félagið óskar eftir svigrúmi til að útfæra hlutina með það að markmiði að bæta og efla starfið.
Leikjanámskeiðið í sumar var mjög vel heppnað en fyrrverandi framkvæmdastjóri sá um það þar sem engin deild hafði tök á því. Ekki er ljóst hvort Sindri muni taka að sér leikjanámskeiðin næsta sumar en rætt um að ákvörðun um það liggi fyrir um áramót.
2.
Frístundastyrkur fyrir eldri borgara
Málsnúmer 202509091
Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs barst fyrirspurn um frístundastyrk til eldri borgara.
Ákveðið að fresta málinu þar til öldungaráð hefur fjallað um það. Auk þess óskað eftir upplýsingum um hvað önnur sveitarfélög eru að gera og hversu margir hornfirskir eldri borgarar eru að nýta sundkortin.
3.
Framtíðarsýn um málefni aldraðra 2026-2030
Málsnúmer 202412045
Frá því í vor hefur verið unnið að gerð framtíðarsýnar í málefnum aldraðra fyrir árin 2026-2034 í Sveitarfélaginu Hornafirði. Haldnar voru vinnustofur í þéttbýlinu í apríl og maí, niðurstöður þeirra lagðar fyrir íbúaráð í dreifbýli og haldin voru opin hús í félagsheimilum í dreifbýlinu dagana 9.-11. september. Nú liggja fyrir drög að stefnunni sem byggja á þeirri vinnu sem hefur farið fram og lagðar eru fyrir fastanefndir sveitarfélagsins til kynningar og umsagnar.Sviðsstjóri velferðarsviðs Skúli Ingibergur Þórarinsson fylgir stefnunni úr hlaði.
Nefndin þakkar Skúla fyrir greinagóða kynningu og óskar sviðinu til hamingju með framtíðarsýnina.
4.
Starfshópur um húsnæðismál Grunnskóla Hornafjarðar
Málsnúmer 202502009
Fundargerðir starfshóps lagðar fram til kynningar.
Fulltrúar í stýrihópunum sögðu einnig frá skólaskoðanaferð sem hópurinn er nýkominn úr. 6. og 7. október skoðaði hópurinn sex skóla. Helgafellsskóla í Mosfellssveit, Stapaskóla í Reykjanesbæ, Dalsskóla í Úlfarsárdal, Stekkjaskóla á Selfossi, Þjórsárskóla í Árnesi og Grunnskólann á Hellu. Starfshópurinn er mjög ánægður með ferðina og telur hana vera mikilvægt innlegg í vinnu hópsins.
5.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs sem hækka 1.jan 2026
Málsnúmer 202509092
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs sem hækka 1. janúar teknar fyrir.
Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að hækka gjaldskrá Sundlaugar Hafnar, Vöruhúss og dagforeldra um 3,7% í samræmi við hækkun vísitölu.

Einnig leggur fræðslu- og frístundanefnd til að frístundastyrkurinn verði hækkaður skv. minnisblaði.

Dagskrárlið vísað til bæjarráðs.
6.
Breyting á reglum um gjaldskrá lengdrar viðveru - Kátakots
Málsnúmer 202510016
Fyrirspurn barst til fræðslu- og frístundasviðs sem snýr að því af hverju það sé ekki 30% afsláttur fyrir einstæða foreldra sem eiga börn í Kátakoti líkt og í leikskólanum.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir þessa fyrirspurn og leggur til að 30% afsláttur fyrir einstæða foreldra gildi líka í Kátakoti.
Dagskrárlið vísað til bæjarráðs.
7.
Barna og ungmennaþing 2025
Málsnúmer 202504082
Farið yfir fyrstu drög að efni málstofa á fyrirhuguðu Barna- og ungmennaþingi sem fyrirhugað er halda 18. nóvember. 19. nóvember eru fyrirhugaðir rýnihópafundir og daginn eftir 20. nóvember verða helstu niðurstöður þingsins kynntar og bæði foreldrum og aðilum úr sveitarstjórn boðið að hlýða á þær. Þær hugmyndir sem lagðar voru fyrir fundinn byggja á niðurstöðum vinnufundar með ungmennaráði 11. september.
Fræðslu- og frístundanefnd ræddi málstofurnar. Nefndinni líst vel á það sem komið er frá ungmennaráði og hlakkar til að fylgjast með framhaldinu.
8.
Íþróttavika Evrópu 2025
Málsnúmer 202506025
Íþróttavika Evrópu er nú lokið og stóð sveitarfélagið fyrir metnaðarfullri dagskrá.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir flotta dagskrá í Íþróttaviku. Nefndin benti þó á að þrátt fyrir að viðburðirnir hafi allir verið á heimasíðunni og deilt þaðan yfir á facebooksíður sveitarfélagsins þá fóru auglýsingar fram hjá fólki og margir hafa talað um að þeir hafi ekki vitað af viðburðum.
9.
Fjölbreytileikavika 2026
Málsnúmer 202510013
Undanfarin ár hefur sveitarfélagið staðið fyrir fjölbreytileika eða hinsegin viku þegar nálgast páska.
Fræðslu- og frístundanefnd hvetur til þess að sveitarfélagið haldi áfram að vera með fjölbreytileikaviku seinni hluta vetrar.