Fræðslu- og tómstundanefnd
1. fundur
21. janúar 2015
kl.
16:30
-
16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson
formaður
Anna María Kristjánsdóttir
varaformaður
Þórey Bjarnadóttir
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson
aðalmaður
Ragnhildur Jónsdóttir
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Erindisbréf fræðslu- og tómstundanefndar 2015
Farið var yfir erindisbréf fyrir fræðslu- og tómstundanefnd. Inn í það var sett tillaga um málefni ungmennaráðs og um forvarnamál.
2.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 7
Sjöunda fundargerð ungmennaráðs lögð fram til kynningar. Ákveðið að bjóða ungmennaráði á fund fræðslu- og tómstundanefndar í febrúar.
3.
Efling leikskólastigsins
Margrét Ingólfsdóttir, Hera Guðmundsdóttir sátu fundinn undir þessum lið. Hjálmar fór yfir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og lagði fram tillögu frá meirihlutanum til umræðu um hvað Sveitarfélagið getur gert til þess að vekja athygli á mikilvægi leikskólastarfs. Margrét lagði áherslu á að það sem fram kemur í tillögunni væri að mestum hluta það sem gert hefur verið á undanförnum árum og það hefði ekki skilað fleiri leikskólakennurum. Hún lagði áherslu á að sveitarfélagið kæmi fram með eitthvað nýtt og vildi sjá tillögur um að gera ákveðið og tímbundið átak til að laða að leikskólakennara t.d.með því að bjóða flutningsstyrk eða annan stuðning sem boðinn væri leikskólakennurum tímabundi. Hún vildi einnig sjá að sveitarfélagið setti sér markmið um fjölgun leikskólakennara. Fram kom að í dag eru 7 leikskólakennarar starfandi í leikskólunum af 30 starfsmönnum en samkvæmt lögum um leikskóla er markmiðið að 2/3 hlutar starfsmanna séu leikskólakennarar. Fræðslu- og tómstundanefnd beinir því til bæjarráðs að skoða hvort það sé hægt að setja fjármagn í átak til fjölgunar leikskólakennara.
4.
Athugasemd við á bókun, 52.fundar í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Hulda L. Hauksdóttir, Herdís T. Tryggvadóttir og Sigrún Bessý Guðmundsdóttir sátu fundinn undir þessum lið. Lögð var fram athugasemd við bókun á 52. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar að ósk trúnaðarmanns Tónskóla A-Skaft. Þar kemur fram að skólastjóri grunnskólans hafi breytt stundaskrá í samráði við skólastjóra og trúnaðarmann tónskólans. Guðlaug Hestnes trúnaðarmaður Tónskólans segir það vera misskilning að hún hafi vitað af breytingum á stundaskrá og samþykkti þær því ekki. Fræðslu- og tómstundanefnd tekur þessa athugasemd til greina.
5.
Öryggishandbók fyrir leik- og grunnskóla 2014
Hulda L. Hauksdóttir, Herdís T. Tryggvadóttir og Sigrún Bessý Guðmundsdóttir sátu fundinn undir þessum lið. Öryggishandbókin lögð fram til umræðu og skólastjóra falið að útfæra áætlanir og samræma þær þeim áætlunum sem nú þegar eru til innan skólans. Áætlað að verkinu ljúki á þessari vorönn.
6.
Sunnlenski skóladagurinn 2016
Rætt um boð frá skólahóp á Suðurlandi um að taka þátt í "Sunnlenska skóladeginum" 27. apríl 2016. Fræðslu- og tómstundanefnd tekur jákvætt í hugmyndina en bíður eftir frekari upplýsingum um daginn áður en ákvörðun um þátttöku verður tekin.
7.
Tómstundastyrkur
Fræðslu og tómstundarnefnd tekur undir tillögur starfshóps um Íþrótta og tómstundarmál frá 13.janúar 2015 og leggur til að tómstundarstyrkurinn verði greiddur fyrir börn á aldrinum 6-18 ára og að upphæðin á hvert barn verði kr. 40.000 og tekur sú hækkun gildi í janúar 2015.Á unglingsárunum verður mest brottfall úr íþróttum og tómstundum og oft eru börnin farin að taka sjálf þátt í kostnaði sem hlýst af þátttökunni. Með aukinni niðurgreiðslu er þess vænst að það dragi úr brottfalli unglinga. Starfshópnum er falið að yfirfara reglur um íþrótta og tómstundarkort.
8.
Umsóknir óskast um að halda 28. Landsmót UMFÍ árið 2017
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að ekki verði sótt um að halda landsmót UMFÍ árið 2017.
9.
Velferðarteymi fundargerðir
Fræðslu- og tómstundanefnd lýsir yfir ánægju sinni með sálfræðiþjónustu fyrir framhaldsskólanemendur í samstarfi við FAS.
10.
Menntastefna sveitarfélagsins 2014-2015