Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

10. fundur
17. september 2015 kl. 17:00 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson formaður
Ingólfur Guðni Einarsson varaformaður
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Dagvistun/leikskóli í Öræfum
Málsnúmer 201505058
Fræðslu- og tómstundanefnd felur starfsmanni að auglýsa eftir einstaklingi sem væri tilbúinn til að gerast dagforeldri með möguleika á aðkomu sveitarfélagsins t.d. vegna húsnæðis, við að útvega leiktæki, girða af leiksvæði o.fl. Þetta væri fyrsta skrefið í átt að því að koma á fót þjónustu við foreldra ungra barna í Öræfum.

2.
Dagvistun/leikskóli í Suðursveit
Málsnúmer 201509041
Fræðslu- og tómstundanefnd felur starfsmanni að auglýsa eftir einstaklingi sem væri tilbúinn til að gerast dagforeldri með möguleika á aðkomu sveitarfélagsins t.d. vegna húsnæðis, við að útvega leiktæki, girða af leiksvæði o.fl. Þetta væri fyrsta skrefið í átt að því að koma á fót þjónustu við foreldra ungra barna í Suðursveit.
3.
Tilnefningar í Ungmennaráð 2015-2016
Málsnúmer 201509026
Tilnefningar hafa borist til setu í Ungmennaráði Hornafjarðar

Þórdís María Einarsdóttir fulltrúi nemendafélags Grunnskóla Hornafjarðar
Sunna Dögg Guðmundsdóttir fulltrúi Þrykkjunnar
Þorkell Ragnar Grétarsson fulltrúi nemendafélags FAS
Ragnar Magnús Þorsteinsson fulltrúi umf. Sindra
Kristján Vilhelm Gunnarsson óháður fulltrúi fræðslu- og tómstundanefndar og Agnar Jökull Imsland Arason til vara.

Nefndin leggur áherslu á að tilnefndir verði varamenn fyrir hina fulltrúana.
4.
Ósk um framlengingu á leigusamningi á Hrollaugsstöðum
Málsnúmer 201509056
Fræðslu- og tómstundanefnd styður framlengingu á leigusamningi á Hrollaugsstöðum við Björn Borgþór Þorbergsson en mælir með að í samningnum séu fyrirvarar um aðra notkun sveitarfélagsins.
5.
Eftirfylgni með könnun á innleiðingu laga um grunnskóla
Málsnúmer 201508051
Farið var yfir fyrirspurn mennta- og menningarmáaráðuneytisins og svar skólastjóra grsk. í Hofgarði.