Fræðslu- og tómstundanefnd
11. fundur
21. október 2015
kl.
16:30
-
19:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson
formaður
Ingólfur Guðni Einarsson
varaformaður
Þórey Bjarnadóttir
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson
aðalmaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
fræðslustjóri
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Heimsókn í Vöruhús
Fundarmenn mættu í Vöruhúsið og skoðuðu það undir leiðsögn Vilhjálms Magnússonar forstöðumanns. Leist þeim einstaklega vel á starfsemina og hugmyndafræði Vöruhússins um skapandi miðju.
2.
Vinnuskóli 2015
Svafa Mjöll fór yfir skýrslu skólagarðanna og vinnuskólans. Ungmenni sem störfuðu þar í sumar voru 27 en 39 sumarið áður. Þrátt fyrir þessa fækkun gekk vel að vinna þau verkefni sem fyrir lágu. Fram kom að jarðvegur skólagarðanna er fullur af njólum og illgresi þrátt fyrir að þeir hafi verið tættir upp tvisvar sinnum í maí. Lagt er til að leggja skólagarðana niður en bjóða fjölskyldum upp á fjölskyldugróðurreiti á svæðinu fyrir neðan Hafnarbrautina við mjólkustöðina. Starfsmönnum falið að kanna kostnað við þessa framkvæmd.
3.
Gjaldskrá sundlaugar 2016
Gunnar Ingi fór yfir rekstur og aðsókn að sundlauginni. Stakt gjald kr. 700 greiddu 14.382 manns á bilinu janúar til september í ár. Stakt gjald er nú kr.700. Gunnar Ingi leggur til að öll börn, eldri borgarar og öryrkjar fá frítt í sund, að stakt gjald verði hækkað í kr. 800- og að leiga á sundfötum og handklæðum verði haldið óbreyttu, kr. 650. Tillagan var samþykkt samhljóða og gjaldskráin 2016 var uppfærð í samræmi við það.
Rætt var um möguleikann á því að leigja sundlaugina út til hópa eftir lokun.
Rætt var um möguleikann á því að leigja sundlaugina út til hópa eftir lokun.
4.
Samvinna árganga leikskóla á Höfn
Snæfríður fór yfir skipulag um aukna samvinnu milli leikskólanna með 4 og 5 ára börnum. Skipulagt samstarf er á hverjum mánudegi auk samveru allra árganga í útiveru einu sinni í mánuði. Hún fór einnig yfir aukin samskipti starfsmanna leikskólanna. Fram kom að samskipti og samstarf milli leikskólanna hefur aukist mikið.
5.
Starfshópur um breytingar á ytri umgjörð leikskólanna á Höfn
Fyrir fundinum lágu upplýsingar til kynningar um skipan í starfshópinn, erindisbréf og aðgerðaáætlun.
Kynnt voru tilboð frá þremur aðilum um ráðgjöf við sameiningarferli leikskólanna.
Kynnt voru tilboð frá þremur aðilum um ráðgjöf við sameiningarferli leikskólanna.
6.
Velferðarteymi fundargerðir
Farið var yfir fundargerðir af fundum no. 43, 44 og 45. Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur bæjarráð til þess að greina kostnað við verkefnið Heilsueflandi samfélag og ákveða í framhaldinu hvort sækja eigi um aðild að því.
7.
Reglur og gjaldskrá um útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins
Fyrir fundinum lágu reglur um útleigu og uppfærð gjaldskrá. Umræður sköpuðust um viðmið og forsendur fyrir gjaldskránni og um gjaldtöku fyrir gistingu íþrótta- og tómstundahópa barna í skólastofum sveitarfélagins. Starfsmönnum falið að yfirfara og uppfæra gjaldskrána.
8.
Gjaldsrkár fræðslu- og tómstundanefndar 2016
Farið var yfir gjaldskrár í skólum sveitarfélagsins og var nefndin sammála um að hækka ekki fæði í skólum á Höfn þar sem kostnaðarþátttaka foreldra stendur undir hráefniskostnaði. Starfsmanni falið að athuga með kostnað í grunnskólanum í Hofgarði. Uppfæra þarf gjaldskrá Tónskólans ogleggja aftur fyrir nefndina.
9.
Tilnefningar í Ungmennaráð 2015-2016
Farð var yfir tilnefningar til aðal- og varamanna í ungmennaráð. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir framlagða tillögu af fulltrúum nefndarinnar.
10.
Dagvistun/leikskóli í Suðursveit
Auglýst hefur verið eftir dagforeldrum fyrir börn í Suðursveit. Engin fyrirspurn um daggæslu í Suðursveit hefur borist. Ákveðið að auglýsa aftur.
11.
Dagvistun/leikskóli í Öræfum
Auglýst hefur verið eftir dagforeldrum fyrir börn í Öræfum. Ein fyrirspurn hefur borist vegna daggæslu í Öræfum sem leiddi til viðræðna um húsnæði og fyrirkomulag daggæslu en viðkomandi vildi þó ekki taka verkefnið að sér er til kom. Ákveðið að auglýsa aftur.