Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

12. fundur
18. nóvember 2015 kl. 16:30 - 20:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson formaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Hjördís Skírnisdóttir 1. varamaður
Arna Ósk Harðardóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Starfshópur um leikskólamál - 1
Málsnúmer 1510010F
Fundargerð samþykkt.
2.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 12
Málsnúmer 1510006F
Fundargerð samþykkt.
3.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 13
Málsnúmer 1511005F
Fundargerð samþykkt. Ákveðið að bjóða Ungmennaráði að funda með fræðslu- og tómstundanenfd næsta miðvikudag 25. nóvemberkl.16:30
4.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201302035
Fundargerðir 46. og 47. funda velferðarteymis samþykktar. Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur til þess að sveitarfélagið sæki um aðild að verkefninu Heilsueflandi samfélag, geri ráð fyrir verkefnastjórn verkefnisins inni starfslýsingu nýs tómstundafulltrúa á næsta ári og feli velferðarteyminu að vera mótandi aðili um framgang þess.
5.
Fimleikadeild Sindra inn í Mánagarð
Málsnúmer 201510070

Eyrún fór yfir kostnaðaráætlun um að færa fimleikana inn í Mánagarð. Eyrún fór yfir samtal við þjálfara, framkvæmdastjóra Sindra og stjórn fimleikadeildarinnar um málið og taka allir vel í að gera þessa tilraun. Fræðslu og tómstundanefnd leggur til að Sveitarfélagið gangi til samninga við Fallastakk um akstur 6 til 18 ára barna á þessar æfingar, en hann er áætlaður kr. 1.193.920 á vorönn 2016 til maíloka 2017. Ekki komi til annars kostnaðar af hálfu sveitarfélagsins þar sem fimleikadeildin sjái um aðra þætti framkvæmdarinnar. Í framhaldinu verði gengið til samninga við Sindra um framkvæmd flutningsins, akstur iðkenda 6 til 18 ára og starfsemina þar sem ákvarðað yrði hlutverk og ábyrgð allra aðila. Iðkendur eru 60 á aldrinum 6 - 18 ára og um 40 á leikskólaaldri. *Ekki er gert ráð fyrir akstri leikskólabarna.
6.
Starfshópur um íþróttir
Málsnúmer 201502062
Eyrún fór yfir samskipti sín við formenn USÚ, Sindra og Mána. Starfshópur um íþróttamál komst að niðurstöðu um að þrjú mál séu forgangsmál; viðbygging við núverandi íþróttasal, tengibygging milli sundlaugar og íþróttahúss og vallarhús. Af þessum þremur forgangsmálum er mest aðkallandi, að mati þessara þriggja formanna, að reisa vallarhús milli Bárunnar og Sindravalla sem getur rúmað geymslur fyrir áhöld og tæki, salerni og skrifstofu og fundaraðstöðu fyrir Sindra og USÚ.
7.
Niðustöður skólapúls og samræmdra prófa
Málsnúmer 201511031
Þórgunnur greindi frá niðurstöðum samræmdra prófa í 4., 7. og 10. bekk og greindi frá því að árangurinn er undir landsmeðaltali í öllum bekkjum í öllum greinum. En í þetta sinn lækkar íslenskan ekki milli 4. og 7. bekkjar og stærðfræðin er heldur á uppleið milli þessara ára. Erum að fá of marga nemendur sem skora of lágt. Kennarar eru sammála um að sérstaklega þurfi að huga að skólagöngu nemenda af erlendum uppruna eða nemendum þar sem annað foreldrið er af erlendum uppruna. Skólinn hefur nýlega fengið heimsókn sérfræðinga frá menntamálastofnun til þess að aðstoða við umbætur.
Viðhorfakönnun nemenda í skólapúlsinum kom vel út í þáttum eins og virkni, áhuga á lestri og stærðfræði. Starfsfólk skólans hefur áhyggjur af líðan sem tengist einelti nemenda þar sem skorið er óásættanlegt í baktali og orðbragði um hvert annað. Hins vegar er einelti á netinu varla mælanlegt. Erum langt yfir landsmeðaltali í hreyfingu.
Ákveðið var að Þórgunnur komi aftur á fund í byrjun næsta árs til að fara yfir aðgerðaáætlanir um bættan árangur og viðbrögð við niðurstöðum úr skólapúlsinum.

8.
Gjaldskrá sundlaugar 2016
Málsnúmer 201510041
Fram kom tillaga um að hækka staka miða í kr. 800.-
Barnagjald verði óbreytt kr. 200- fyrir börn yngri en 18 ára utan sveitarfélagsins.
Börn yngri en 18 ára, öryrkjar og ellilífeyrisþegar með lögheimili í sveitarfélaginu fá frítt í sund. Leiga á handklæðum og sundfötum verði kr. 800-.
Tveir fulltrúar meirihlutans samþykktu tillöguna en fulltrúar framsóknarflokksins sátu hvað varðar barnagjaldið. Þeir samþykktu tillöguna að öðru leiti.
9.
Reglur og gjaldskrá um útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins
Málsnúmer 201504035
Þessum lið var frestað til næsta fundar 25. nóvember.
10.
Gjaldskrár fræðslu- og tómstundanefndar 2016
Málsnúmer 201510045
Undir þessum lið er í fjallað um gjaldskrá Tónskólans.
Þessum lið var frestað til næsta fundar 25. nóvember.
11.
Vinnuskóli 2015
Málsnúmer 201501066
Þessum lið var frestað til næsta fundar 25. nóvember.
12.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201305011
Þessum lið var frestað til næsta fundar 25. nóvember.
13.
Framkvæmdaáætlun í umhverfismálum
Málsnúmer 201309021
Þessum lið var frestað til næsta fundar 25. nóvember.
14.
Ósk grunnsk. Hofgarði um sérakstur
Málsnúmer 201511034
Þessum lið var frestað til næsta fundar 25. nóvember.
15.
Skólaþing sveitarféalga 2015
Málsnúmer 201511026
Þessum lið var frestað til næsta fundar 25. nóvember.