Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

13. fundur
25. nóvember 2015 kl. 16:30 - 18:15
í Nýheimum
Nefndarmenn
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson aðalmaður
Hjördís Skírnisdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Verkefni ungmennaráðs 2015-2016
Málsnúmer 201511015
á fundinn mæta 5 fulltrúar ungmennaráðs ásamt tómstundafulltrúa.
Ungmennaráð greindi frá starfsáætlun sinni. Ráðið hefur stofnað facebook síðu til að miðla upplýsingum. Ráðið hefur áhuga á að efla kosningaþátttöku og lýðræðisvitund ungmenna. Hugmynd er uppi að samhliða næstu forsetakosningum verði skuggakosningar fyrir ungt fólk á aldrinum 14 ? 18 ára. Til að undirbúa þær kosningar fyrirhugar ráðið að hafa vinnubúðir um framkvæmd kosninga. Næstu forsetakosningar eru 25. júní næst komandi. Þá hefur ráðið í huga að taka við síðunni ?Ung rödd? sem nemendur í FAS sjá um núna.

Ungmennaráð hefur líka áhuga á því að heimsækja annað ungmennaráð.
Í janúar á næsta ári verður ráðstefna í Finnlandi á vegum Evrópu unga fólksins. Þangað fara starfsmaður Ungmennaráðs og varaformaður. Ráðstefnan snýst um hvernig efla megi forvarnir.
Þá hefur ungmennaráð lagt fyrir könnum um félagslíf fyrir ungt fólk á Hornafirði. Þeir sem voru spurðir eru á því að efla þurfi félagslífið. Það yrði best gert með ungmennahúsi þar sem hægt væri að hittast til að sinna áhugamálum sínum og halda viðburði.
Ungmennaráð hefði mikinn hug á því að nýta húsnæði Þrykkjunnar fyrir ungmennahús þegar nemendur úr grunnskólanum nýta húsið ekki. Í fyrstu gæti verið um tilraunaverkefni að ræða, t.d. að hafa einn dag í viku sem væri fyrir 16 ára og eldri.
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur áherslu á að hlúa að ungmennaráðinu og styðja við hugmyndir þeirra.
2.
Reglur og gjaldskrá um útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins
Málsnúmer 201504035
Farið var yfir uppfærða gjaldskrá, reglur og samninga. Umræður sköpuðust um gjaldtöku fyrir skólastofur. Lagt er til að það verði fellt út úr gjaldskrá en samið við félög og félagasamtök í sveitarfélaginu sem fá hópa í heimsókn, um gjald fyrir gistingu. Starfsmanni falið að setja inn sambærilegt gjald fyrir útleigu á Hrollaugsstöðum. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir gjaldskrána með þessum breytingum.
3.
Gjaldskrá Tónskóla A-Skaft 2015-2016
Málsnúmer 201511064
Gjaldskrá Tónskólans samþykkt.
4.
Vinnuskóli 2015
Málsnúmer 201501066
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að akólagarðarnir verði lagðir niður í núverandi mynd, boðið upp á fjölskyldugarða á svæðinu fyrir neðan mjólkurstöðina og vatn gert aðgengilegt.
5.
Ósk grunnsk. Hofgarði um sérakstur
Málsnúmer 201511034
Fræðslu- og tómstundanefnd finnst mikilvægt að nemendur í Grunnskólanum í Hofgarði fái tækifæri til félagslegra samskipta við jafnaldra sína á Höfn. Starfsmanni falið að vinna málið áfram og finna sem hagkvæmasta lausn á akstrinum.
6.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201305011
Fræðslu- og tómstundanefnd bendir á að í stefnunni vantar umfjöllun um áhrif og ábyrgð landbúnaðar sem atvinnugreinar á umhverfið.
7.
Framkvæmdaáætlun í umhverfismálum
Málsnúmer 201309021
Fræðslu- og tómstundanefnd bendir á að fjalla um landbúnað í stefnunni og framkvæmdaáætluninni. Bent er á að á áningarstöðum meðfram þjóðveginum í sveitarfélaginu vantar tilfinnanlega ruslafötur svo rusli sé ekki hent allt í kringum áningastaðina. Bent er á að í sveitarfélaginu séu fleiri félagsheimili en Mánagarður og Holt sem þarf að fegra í kringum.