Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

14. fundur
16. desember 2015 kl. 16:30 - 19:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson formaður
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201302035
2.
Starfshópur um leikskólamál - 2
Málsnúmer 1511015F
3.
Starfshópur um leikskólamál - 3
Málsnúmer 1512005F
4.
Stjórnskipulag Grunnskóla Hornafjarðar
Málsnúmer 201512027
Minnisblað um stjórnskipan grunnskólans var lagt fram til umræðu. Rætt um að móta þurfi hugmyndir og stefnu um hvernig stjórnskipulagið eigi að vera, verði ákvörðun tekin um að breyta núverandi stjórnskipulagi. Mikilvægt að hefja vinnu í að móta endurskoðunarferli með hagsmunaaðilum.
5.
Reglur um samskipti trúfélaga og skóla
Málsnúmer 201512034
Fjallað var um tillögur að reglum sem hafa fengið jákvæða umfjöllun í hópi skólastjóra í skólum sveitarfélagsins. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir reglurnar.
6.
Húsnæðisvalkostir fyrir einn leikskóla
Málsnúmer 201511074
Farið var yfir hugmyndir sem fræðslunefndarmenn skiluðu inn um kosti og galla húsnæðisvalkosta og það borið saman við hugmyndir starfshópsins starfsmanna á skipulagssviði og það rætt.
7.
Flutningur fimleikastarfs í Mánagarð
Málsnúmer 201509054
Einar Smári vék af fundi undir þessum lið.
Rætt var um endurskoðaða þjálfunar- aksturs- og kostnaðaráætlun við að flytja fimleikana í íþróttahúsið í Mánagarði. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að þessi tilraun verði gerð út maí 2016 og þá verði málið endurskoðað í ljósi fenginnar reynslu.
8.
Reglur um tómstundastyrk
Málsnúmer 201501049
Fjallað var um beiðni um undanþágu frá reglum um tómstundastyrk. Beiðnin var samþykkt með ákveðnum skilyrðum og ákveðið að allar álíka undanþágubeiðnir verði meðhöndlaðar í samræmi við g - lið 4. greinar reglna um tómstundastyrk.