Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

15. fundur
20. janúar 2016 kl. 16:30 - 19:35
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson formaður
Ingólfur Guðni Einarsson varaformaður
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 14
Málsnúmer 1512008F
2.
Stjórnskipulag Grunnskóla Hornafjarðar
Málsnúmer 201512027
Samþykkt var eftirfarandi tillaga:

Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að skipuriti Grunnskóla Hornafjarðar verði breytt frá og með næsta skólaári 2016 - 2017. Unnið verði að nýju skipuriti fyrir skólann í samráði við núverandi skólastjóra. Í þeirri vinnu taki þátt skólastjórar, formaður fræðslunefndar, fræðslustjóri og bæjarstjóri. Samráð verði haft við aðra hagsmunaaðila s.s. skólaráð og starfsmenn skólans.

Nefndarmenn leggja áherslu á að niðurstaða um skipurit verði lögð fyrir næsta fund.
3.
Reglur um leikskólana á Hornafirði
Málsnúmer 201601052
Breytingar á reglum um leikskóla Hornafjarðar ræddar og samþykktar.
4.
Styrktar- og afrekssjóður USÚ
Málsnúmer 201504017
Fræðslu- og tómstundanefnd telur að byggja þurfið ákvörðun um fjárfarmlag til næstu fimm ára í styrktar- og afrekssjóð USÚ á fleiri gögnum en liggja fyrir þessum fundi. Átt er við gögn eins og ársreikning USÚ, upplýsingar um hve hátt hlutfall tekna sambandsins fara í sjóðinn o.fl. Fræðaslustjóra falið að kalla eftir þessum gögnum fyrir næsta fund bæjarráðs. Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarráði.

5.
Styrkir fræðslunefndar
Málsnúmer 201511022
Umsókn Ungmennafélagsins Mána. Fræðslu- og tómstundanefnd telur að gera eigi samning við Ungmennafélagið Mána eins og við mörg önnur félög í stað þess að félagið sæki um styrk á hverju ári.

Umsókn fimleikadeildar. Fram kom að æfingagjöld fara í laun þjálfara og rekstur deildarinnar og ef einhver afgangur er þá hefur hann farið í tækjakaup. Deildin hefur aflað tekna til tækjakaupa undanfarin ár eftir ýmsum leiðum, keypt ný og notuð áhöld. Iðkendur deildarinnar eru nú 110.Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir að veita fimleikadeildinni styrk til tækjakaupa að upphæð kr. 400.000-Jafnframt leggur nefndin til að bæjarráð geri samning við fimleikadeildina um árlegt framlag til eðlilegrar endurnýjunar áhalda og búnaðar til fimleikaiðkunar.
Einar Smári Þorsteinsson vék af fundi undir þessum lið.

Umsókn frá Lilju Björgu Jónsdóttur vegna þátttöku í aflraunakeppnum. Nenfdin samþykkir að veita kr. 100.000- vegna keppnisferðalaga umsækjanda.

Fræðslu- og tómstundanefnd felur fræðslustjóra að vinna drög að reglum um úthlutun styrkja.
6.
Starfamessa á Hornafirði
Málsnúmer 201601053
Fræðslustjóri kynnti hugmyndir að starfamessu. Nefndinni lýst vel í hugmyndina og felur fræðslustjóra að vinna að því að af framkvæmd geti orðið.
7.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201302035
Fundargerðir velferðarteymis lagðar fram.