Fræðslu- og tómstundanefnd
16. fundur
17. febrúar 2016
kl.
16:30
-
19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson
formaður
Ingólfur Guðni Einarsson
varaformaður
Þórey Bjarnadóttir
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 15
Fundargerð 15. fundar Ungmennaráðs lögð fram til staðfestingar og var hún samþykkt.
2.
Stjórnskipulag Grunnskóla Hornafjarðar
Ragnhildur fór yfir minnisblað um það sem gerst hefur í þessum málum frá síðasta fundi nefndarinnar. Umræður urðu um málið.
Á fundi skólastjóra með fræðslustjóra og bæjarstjóra 11. febrúar s.l. var ákveðið að leggja til að í nýju skipuriti yrði einn skólastjóri og tveir aðstoðarskólastjórar. Aðstoðarskólastjórarnir hafi aðsetur sinn í hvoru húsi, stýri daglegu starfi á yngra og eldra stigi og sjái um skipulag sérkennslu á hvoru stigi. Nánari skipting verkefna verði ákveðin síðar.
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir framlagða tillögu.

3.
Breytingar í leikskólamálum á Höfn
Ragnhildur lagði fram yfirlit yfir allar þær greiningar sem búið er að gera með samþykki fundarins og fóru fundarmenn yfir upplýsingarnar sem þar komu fram. Síðan fóru fram umræður um mismunandi valkosti. Allir nefndarmenn voru sammála um að nýr leikskóli er besti kosturinn ef horft er til starfseminnar en hann er sá dýrasti. Versti kosturinn er að starfrækja sameinaðan leikskóla í tveimur húsum. Nefndarmönnum fannst ekki skipta máli við hvorn leikskólann yrði byggt ef viðbygging yrði niðurstaðan. Fræðslu- og tómstundanefnd vísar málinu til afgreiðslu í bæjarráði.
4.
Staða starfsmannamála á Lönguhólum
Margrét fór yfir stöðuna í starfsmannamálum á Lönguhólum.
Í dag vantar í eina stöðu miðað við barnafjölda.
- Einn starfamaður sem er að fara í barnseignaleyfi hefur verið látinn minnka við sig um vinnu niður í 60% var í 100% og mun ekki vinna lengur en fram að páskum. Þá mun vanta í þá stöðu.
- Einn starfsmaður í 100% vinnu hættir 12 mars.
- Einn starfsmaður í 100% stöðu og annar í 40% stöðu hættir 1. maí.
- Þrír starfsmenn í 100% stöðum hafa látið vita að þeir hætti um sumarfrí.
Umræður urðu um ástæður starfsmannaskortsins og samkeppni um starfsfólk í sveitarfélaginu og að húsnæðisskortur sé farinn að hamla mönnun. Fram kom hjá Margréti að ástand í leikskólamálum sé meðal annars ástæðan fyrir því að fólk segir upp og hún kallar eftir ákvörðun um framtíð leikskólamála. Fræðslu- og tómstundanefnd tekur undir áhyggjur Margrétar. Rætt um að auglýsa á landsvísu og að sveitarfélagið setji í forgang að útvega húsnæði. Fræðslustjóra falið að kanna til hvaða viðbragða önnur sveitarfélög hafa gripið ef ekki tekst að manna deildir.

5.
Velferðarteymi fundargerðir
Fundargerð 53. fundar velferðarteymis lögð fram til kynningar.