Fræðslu- og tómstundanefnd
17. fundur
16. mars 2016
kl.
16:30
-
19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson
formaður
Ingólfur Guðni Einarsson
varaformaður
Þórey Bjarnadóttir
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson
aðalmaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 16
Fundargerð Ungmennaráðs lögð fram til kynningar.
2.
Breytingar í leikskólamálum á Höfn
Rætt um ákvörðun bæjarstjórnar um að byggja við Lönguhóla og starfrækja þar einn leikskóla á Höfn. Rætt um minnisblað fræðslustjóra um næstu skref í ferlinu.
3.
Dekkjakurl á gervigrasvöllum
Gúmmíkurlið sem er á gervigrasinu í Bárunni og á sparkvellinum við íþróttahús Hafnar er af sömu gerð og á flestum gervigrasvöllum landsins. Þær rannsóknir sem gerðar hafa verið hafa ekki skilað óyggjandi niðurstöðum um skaðsemi kurlsins frekar en á öðru kurli sem sums staðar er notað í staðinn. Fræðslu og tómstundanefnd mun fylgjast með rannsóknum Umhverfisstofnunar á skaðsemi dekkjarkurls og samþykktum Alþingis um málið og fylgja ráðleggingum um að skipta út kurlinu þegar niðurstöður liggja fyrir.
4.
Menntastefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Fræðslustjóri fór yfir þær breytingar sem gerðar hafa verið á menntastefnunni. Engar athugasemdir voru gerðar en ákveðið að taka hana aftur fyrir á næsta fundi.
5.
Dagvistun/leikskóli í Öræfum
Fram kom að börnum í Öræfum mun fjölga um 9 í sumar og undirbúa þarf þjónustu fyrir þau frá og með næsta hausti. Börnin eru á aldrinum 1 - 14 ára. Fyrir eru 7 börn á leiks- og grunnskólaaldri. Ákveðið að skólafólk í Grunnskólanum í Hofgarði og fræðslustjóri afli upplýsinga um hvernig önnur sveitarfélög standa að samreknum leik- og grunnskóla og vinni tillögur um hvernig best er að koma til móts við þarfir vegna fjölgunar leik- og grunnskólabarna í Öræfum.
6.
Menningarstefna Hornafjarðar
Til umsagnar
Rætt um menningarstefnuna. Hugmynd kom fram um að gera ráð fyrir leiklistarstarfi í þeim breytingum sem eftir er að gera í salnum í Sindrabæ. Draga fram kosti og galla þess að gera Mánagarð eða Sindrabæ að framtíðarhúsnæði fyrir leiklistina. Spurning að gera Sindrabæ að menningarhúsi sveitarfélagsins.
7.
Bréf til upplýsingar um greiningar á lestrargetu
Rætt um bréf menntamálastofnunar.
8.
Velferðarteymi fundargerðir
Fundargerð Velferðarteymis lögð fram til kynningar.