Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

18. fundur
20. apríl 2016 kl. 16:30 - 19:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson formaður
Ingólfur Guðni Einarsson varaformaður
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Sigrún Birna Steinarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Arna Ósk Harðardóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 17
Málsnúmer 1604007F
Fræðslu- og tómstundanefnd tekur vel í að skoða kynjamerkingar á salernum í stofnunum sveitarfélagsins en mælir ekki með að farið verði í framkvæmdir til að breyta salernum sem eru fyrir hendi í dag.
Nefndin tekur vel í skuggakosningar fyrir ungmenni á aldrinum 13 til 17 ára. Starfsmönnum falið að skoða kostnað og framkvæmd.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skýrsla tómstundafulltrúa 2016
Málsnúmer 201604007
Dagbjört fór yfir skýrslu tómstundafulltrúa. Fram kom að aðsókn að Þrykkjunni var ekki síðri í vetur en í fyrra. Spurt var um hádegisopnanir, þær eru vel nýttar. Unglingarnir fara mikið í Nettó kaupa sér hádegismat og borða hann í Þrykkjunni. Rætt var um samstarf ungmenna austur og hvort færa ætti það á Suðurlandið. Tómstundafulltrúi er mjög ánægður með samstarfið við Austurland. Rætt var um LAN helgar í Vöruhúsinu, bannaða leiki og stefnu um það.
3.
Skipulag æskulýðs- og tómstundamála
Málsnúmer 201604051
Fram kom að starf tómstundafulltrúa sem bæði tómstundafulltrúi og forstöðumaður Þrykkjunnar hefur aukist mjög mikið með aukinni virkni ungmenna. Rætt um forvarnargildi öflugs starfs með ungmennum. Erfitt er að manna starf hlutastarfsmanns sérstaklega vegna þess hve hádegisopnunin slítur starfsdaginn í sundur. Fræðslu og tómstundanefnd þakkar Dagbjörtu fyrir vel unnin störf og leggur til að skýrsla tómstundafulltrúa og minnisblað starfsmanna verði haft til hliðsjónar við ráðningu nýrra starfsmanna. Með tilkomu nýrra verkefna s.s. ungmennahúss og verkefnisstjórn heilsueflandi samfélags leggur nefndin til aukningu um 50% starfshlutfall á sviði æskulýðs- og tómstundamála. Starfsemin gæti skipst í 100% starf tómstundafulltrúa, 50% starf forstöðumanns Þrykkjunnar og 30% starf aðstoðarmanns í Þrykkunni.
4.
Bréf frá verkgreinakennurum GH í Vöruhúsi
Málsnúmer 201604036
Starfsmenn skipulagssviðs hafa í vetur unnið að heildahönnun endurbóta við Vöruhúsið að innan og utan. Þeirri hönnun er að ljúka. Fyrsti áfangi endurbóta hefur verið ákveðinn í kjallara hússins. Framkvæmdir verða boðnar út á næstunni og verður unnið að þeim
frá maí til september. Farið verður í viðgerðir á ytra byrði hússins, skipt út ónýtum gluggum og gleri og málað o.fl. Áhersla er lögð á að þessar framkvæmdir komi í veg fyrir að frekari skemmdir verði á húsinu, geri það múshelt og útrými annarri óværu. Gert er ráð fyrir endurnýjun á borðum og stólum í myndmennta- og textílstofum í sumar. Fram kom að ekki er búið að áfangaskipta endurbótum á Vöruhúsinu sem heild. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að gerð verði tímasett framkvæmdaáætlun um endurbætur á húsinu.
5.
Skólalóð við Hafnarskóla
Málsnúmer 201604037
Þórgunnur fór yfir málið. Starfsfólk skólans leggur til að byrjað verði á því að hanna litla völlinn bak við skólann og vinna við breytingar þar í sumar. Fræðslu- og tómstundanefnd styður áframhaldandi vinnu við verkið.
6.
Umsókn um leyfi - Tónskóli
Málsnúmer 201604038
Rætt var um mönnun í Tónskólanum þar sem fram kom að einn kennari er að hætta sökum aldurs. Búið er að auglýsa eftir kennurum í Tónskólann í öllum helstu miðlum landsins en enginn hefur spurst fyrir um starf. Ef enginn sækir um er starf forskólans í grunnskólanum í hættu. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir ósk um launalaust leyfi í ár.
7.
Starfshópur um leikskólamál - 6
Málsnúmer 1604004F
8.
Þarfagreining v. nýbyggingar leikskóla
Málsnúmer 201604019
Farið var yfir þarfagreiningar vegna nýbyggingar leikskóla.
9.
Samrekinn leik- og grunnskóli í Hofgarði
Málsnúmer 201604058
Fram kom að börnum á leik- og grunnskólaaldri fjölgar úr 7 í 16 í Öræfum næsta haust. Fræðslu- og tómstundanefnd styður rekstur samrekins leik- og grunnskola og felur fræðslustjóra að vinna áfram að framgangi málsins í samvinnu við skólastjóra.
10.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201302035
Fundargerð lög fram.

11.
Menntastefna Hornafjarðar
Málsnúmer 201603038
Rætt var um hönnun og útlit.
12.
Skólaakstur 2016-2020 - Útboð
Málsnúmer 201604056
Rætt var um framkvæmd skólaaksturs og útboð á honum. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að akstur í fimleika ef þeir verða áfram í Mánagarði, verði boðin út á sama tíma. Bent var á að börn frá vestustu bæjum í Suðursveit yrðu allt of lengi í bílnum ef sami bíll tæki börn í Suðursveit og af Mýrum.