Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

2. fundur
18. febrúar 2015 kl. 16:15 - 21:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson formaður
Anna María Kristjánsdóttir varaformaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson aðalmaður
Hjördís Skírnisdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 8
Málsnúmer 1502008F
Fulltrúar Ungmennaráðs og tómstundafulltrúi sátu fundinn undir þessum lið. Sunna Dögg Guðmundsdóttir, Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir, Ágúst Máni Aðalsteinsson og Þorlákur Helgi, Ingvi Þór Sigurðsson og Dagbjört Ýr Kiesel.
Ungmennaráð kynnti ráðstefnu um lýðræðislega þátttöku ungmenna og hugmynd um "Shadow Election" sem eru sýndarkosningar þar sem hægt er að æfa sig í að taka þátt í stjórnmálaþátttöku og nýta kosninaréttinn. Þau kynntu hugmynd um að þróa ungmennahús í samvinnu við Þrykkjuna, fá að nýta hana undir ungt fólk eftir grunnskóla þá daga sem grunnskólanemendur nýta hana ekki. Til þess að af þessu geti orðið þarf að gera ákveðnar breytingar og gera þarf ráð fyrir að þær kosti viðbótar fjármagn. Ungmennaráð er sannfært um forvarnargildi þessarar hugmyndar. Nefndarmenn tóku jákvætt í hugmyndinaq. Hugmyndin verður kynnt á ungmennaþingi sem ungmennaráð er að undirbúa í mars. Yfirskrift þess er "Hvað vill ungt fólk á Hornafirði. Ungmennaráð lagði fram ósk um aukið fjárframlag, sem nefndarmenn tóku jákvætt í og vísuðu málinu áfram til bæjarráðs. Ákveðið er að Ungmennaráð mæti á fund fræðslu- og tómstundanefndar til að kynna niðurstöður af þinginu.
2.
Erindisbréf Ungmennaráðs 2015
Málsnúmer 201502032
Fulltrúar Ungmennaráðs og tómstundafulltrúi sátu fundinn undir þessum lið. Sunna Dögg Guðmundsdóttir, Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir, Ágúst Máni Aðalsteinsson og Þorlákur Helgi, Ingvi Þór Sigurðsson og Dagbjört Ýr Kiesel.

Farið var yfir breytingartillögur að erindisbréfi fyrir ungmennaráð, fram komnar tillögur voru samþykktar en ákveðið að skoða betur ákvæði um tilnefningar í ráðið og afgreiða það á næsta fundi.
3.
Endurskoðun á umgjörð leikskóla
Málsnúmer 201501051
Snæfríður Svavarsdóttir leikskólastjóri, Harpa Þorgeirsdóttir fulltrúi starfsmanna og Ragnheiður Másdóttir fulltrúi foreldra sátu fundinn undir þessum lið. Hjálmar kynnti verkefnistillögu um úttekt á leikskólamálum á Hornafirði. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir fyrirliggjandi verkefnistillögu. Fulltrúar framsóknarflokksins samþykktu ekki tillöguna. Hjálmar fór því næst yfir drög að spurningalista bar upp breytingartillögur og vísaði nánari úrvinnslu listans til fræðslustjóra í samvinnu við leikskólastjóra, foreldrafélag, foreldraráð og fleiri aðila. Hann sagði því næst frá fundi sem ákveðið er að halda með starfsfólki leikskólanna, fræðslunefnd og bæjarstjóra 3. mars um könnunina. Ákveðið að vísa rekstrarlegu og fjárhagslegu mati á mismunandi kostum til vinnslu hjá fjármálasviði sveitarfélagsins og endurskoðendum þess.
4.
Lestur og stærðfræði leið til árangurs
Málsnúmer 201408012
Hulda L. Hauksdóttir skólastjóri, Herdís T. Tryggvadóttir fulltrúi kennara, Hrafnhildur Magnúsdóttir fulltrúi foreldraráðs sátu fundinn undir þessum lið. Brynja H. Baldursdóttir og Nanna Dóra Ragnarsdóttir leiðtogar vinnuteymis um innleiðingu Leiðar til árangurs, voru gestir fundarins. Þær fóru yfir skýrslu um þá vinnu sem grunnskólinn hefur unnið í "Leið til árangurs" á haustönninni. Þær lýstu því að á könnunum nú í febrúar koma fram verulegar framfarir í lestrarhraða og lesskilningi miðað við kannanir frá því í haust. Rætt var um mikilvægi foreldra í þessu verkefni og mikilvægi samvinnu innan starfsmannahópsins. Að því loknu sýndi Hulda árangurinn á myndrænan hátt með súluritum.
5.
Barnagæsla á starfsdögum grunnskólans
Málsnúmer 201502065
Hulda L. Hauksdóttir skólastjóri, Herdís T. Tryggvadóttir fulltrúi kennara, Hrafnhildur Magnúsdóttir fulltrúi foreldraráðs sátu fundinn undir þessum lið. Kvartanir hafa borist um það fyrirkomulag að grunnskólinn hefur boðið upp á gæslu ungra barna starfsmanna sinna á starfsdögum. Þetta hefur verið gert í þeim tilgangi að gera skólann að sveigjanlegum og fjölskylduvænum vinnustað. Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur til umræðu á forstöðumannafundum um leiðir til þess að koma til móts við þarfir vegna gæslu barna á starfsdögum skóla. Hulda lýsti þeirri ákvörðun að skólastjórnendur bjóði ekki upp á þessa gæslu að svo stöddu.
6.
Tómstundastyrkur 2015
Málsnúmer 201501049
Ákveðið að tillögur að nýjum reglum um tómstundastyrk verði fyrst kynntar í starfshópi um íþróttamál eins og bókað var á síðasta fundi.
7.
Gjaldskrá sundlaugar 2015
Málsnúmer 201502092
Gunnar Ingi Valgeirsson sat fundinn undir þessum lið og fór yfir samanburð á gjaldskrám sundlauga valinna sveitarfélaga. Ákveðið að afgreiða gjaldskrá sundlaugar á næsta fundi.
8.
Styrkir fastanefnda
Málsnúmer 201410010
Tvær umsóknir bárust um styrki til fræðslu- og tómstundanefndar.
Önnur var frá Ungmennafélaginu Mána og hin frá Hestamannafélaginu Hornfirðingi.
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að Umf. Máni fái úthlutað kr. 300.000 til barna- og ungmennastarfs.

Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að Hestamannafélagið Hornfirðingur fái úthlutað kr. 300.000 til barna- og ungmennastarfs.

Félög sem sækja um styrki til nefndarinnar eru hvött til þess að skila inn vönduðum umsóknum þar sem fram koma tilgangur og markmið með starfseminni sem sótt er um styrk fyrir.
9.
Starfshópur um íþróttir
Málsnúmer 201502062
Gunnar Ingi Valgeirsson forstöðumaður íþróttamannvirkja sat fundinn undir þessum lið. Lögð var fram tillaga um skipun nýs starfshóps sem hefur það hlutverk að greina mismunandi þarfir íþróttagreina. Tilnefningar skulu berast fyrir næsta fund bæjarráðs. Tillagan var samþykkt sem og erindisbréf hópsins.