Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

28. fundur
18. janúar 2017 kl. 16:30 - 19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson formaður
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson aðalmaður
Sigrún Birna Steinarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 22
Málsnúmer 1701003F
Fundargerð lögð fyrir til kynningar.
2.
Ungmennahús
Málsnúmer 201701046
Rætt um þarfagreiningu sem Ungmennaráð hefur sett fram um hvað þau vilja hafa í ungmennahúsi. Ungmennaráð telur að gera eigi tilraun með að hittast eitt kvöld í viku í Þrykkjunni og hafa þá aðgang að þeim leikjum og tækjum sem þar eru. Fræðslu- og tómstundanefnd styður að starfsemi Ungmennahúss verði í húsnæði Þrykkjunnar eitt kvöld í viku og að samið verði við tómstundafulltrúa um að vera staðar þessi kvöld.
3.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201302035
67. Fundargerð lögð fram til umræðu.
4.
Rekstur grunnskóla - yfirlit
Málsnúmer 201610050
Farið var yfir upplýsingar um rekstur grunnskóla sveitarfélagsins og þær ræddar.
5.
Kjarasamningur Félags grunnskólakennara og Sambands Íslenskra Sveitarfélaga
Málsnúmer 201612006
Bókun bæjarráðs 16.01.2017:"Fræðslustjóri fór yfir innihald vegvísis.Bæjarrráð tilnefnir fræðslustjóra sem fulltrúa sveitarfélagsins. Einnig leggur bæjarráð til að fulltrúar kennara verði þrír frá Grunnskóla Hornafjarðar og einn frá Grunnskóla Hofgarði. Málið verður einnig á dagskrá fræðslu- og tómstundarnefndar."
Rætt var um vegvísi samstarfsnefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara vegna málefna grunnskólans. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir að ef kennarar óski eftir fleiri fulltrúum sé hægt að bæta við einum til tveimur til viðbótar.
6.
Stuðningur við foreldra barna sem komast ekki inn á leikskóla.
Málsnúmer 201701040
Auglýsingar eftir starfsfólki á leikskóla og sjálfstætt starfandi dagforeldrum hafa ekki borið árangur. Því leggur fræðslu- og tómstundanefnd til að bæjarráð taki málið upp að nýju.
7.
Fundarstjórnun og fundarsköp
Málsnúmer 201701043
Farið var yfir samantekt á hæfi og vanhæfi fulltrúa í nefndum svo og um réttindi og skyldur áheyrnarfulltrúa á fundum nefnda. Fræðslu- og tómstundanefnd felur fræðslustjóra að upplýsa áheyrnarfulltrúa um réttindi sín og skyldur.
8.
Styrkir fræðslu og tómstundarnefndar
Málsnúmer 201611075
Hjálmar Sigurðsson og Einar Smári Þorsteinsson véku af fundi undir þessum lið. Hjördís Skírnisdóttir og Arna Ósk Harðardóttir tóku sæti þeirra, Þóra Björg Gísladóttir tók við fundarstjórn.
Fræðslu- og tómstundanefnd ákvað að veita eftirfarandi styrki:
Fimleikadeild Sindra kr. 275.000- til kaupa á dýnu.
Frjálsíþróttadeild Sindra kr. 200.000- til kaupa á hástökkshúsi.
Körfuknattleiksdeild Sindra kr. 25.000 til kaupa á körfum fyrir yngstu iðkendurna.
9.
Erindi frá stjórn fimleikadeildar Sindra
Málsnúmer 201701039
Hjördís Skírnisdóttir vék af fundi, Hjálmar Sigurðsson tók sæti aftur og tók við fundarstjórn að nýju. Arna Ósk Harðardóttir sat áfram. Fræðslu- og tómstundanefnd felur forstöðumanni Íþróttamiðstöðvar að kanna málið og vinna kostnaðaráætlun um framkvæmdir ef talið er að þær séu gerlegar.
10.
Ársskýrsla fræðslustjóra
Málsnúmer 201701047
Ársskýrsla fræðslustjóra lögð fram til umræðu.