Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

3. fundur
19. mars 2015 kl. 16:30 - 19:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson formaður
Anna María Kristjánsdóttir varaformaður
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Efling leikskólastigsins
Málsnúmer 201501047
Lagðar voru fram tillögur sem miða að því að hvetja starfsfólk leikskólanna til náms í leikskólaliða í framhaldsskóla eða leikskólakennarafræðum í háskóla. Umræður urðu um tillögurnar. Hvatt var til þess að finna leiðir til að kynna þetta átak á landsvísu verði tillögurnar samþykktar í bæjarstjórn. Tillögurnar voru samþyktar samhljóða.
2.
Endurskoðun á umgjörð leikskóla
Málsnúmer 201501051
Hj
álmar kynnti aðdraganda og tilgang þess að leggja spurningakönnun fyrir foreldra og starfsfólk leikskóla. Leikskólastjórarnir Margrét Ingólfsdóttir og Snæfríður Svavarsdóttir lýstu sínum sjónarmiðum og þeim afleiðingum á innra starf leikskólanna sem þær sjá fyrir sér að muni verða í kjölfar mismunandi útfærslu breytinga komi til þeirra. Umræður urðu um málið. Leikskólastjórarnir óskuðu eftir því að bréf sem þær sendu fulltrúum í fræðslu- og tómstundanefnd í morgun verði fylgiskjal til bæjarráðs og var það samþykkt. Gunnhildur lýsti þeirri skoðun sinni að eftirfarandi þrjú atriði eigi ekki samleið; að leita leiða til að efla menntunarstig starfsmanna, kanna kostnað mismunandi valkosta og gera könnunina.

Síðan var farið yfir spurningakönnunina.
3.
Erindisbréf Ungmennaráðs 2015
Málsnúmer 201502032
Erindisbréfi Ungmennaráðs var samþykkt samhljóða.
4.
Tómstundastyrkur
Málsnúmer 201501049
Farið var yfir tillögur starfshóps að reglum um tómstundastyrk. Umræður urðu eftirfylgni með ákvæðinu um 60% mætingu og ákveðið að setja reglur um eftirfylgnina samhliða innleiðingu fyrirhugaðs greiðslu- og skráninagkerfis. Reglurnar voru samþykktar samhljóða.
5.
Gjaldskrá sundlaugar 2015
Málsnúmer 201502092
Farið var yfir tillögur um breytingar á gjaldskrá sundlaugar. Samþykkt var að hækka stakt gjald í sund fyrir aldurshópinn 18 - 67 ára um kr. 100 eða úr kr. 600 upp í kr. 700 og gjaldfrjálst verði fyrir öll börn upp að 18 ára aldri óháð búsetu. Áfram verði gjaldfrjálst fyrir öryrkja og eldri borgara sem lögheimili eiga í sveitarfélaginu.


Tillaga að verði korta 18-67 ára

10 miðar;
4.100

30 miðar;
10.600

Ársgjald
; 29.800



Breytt gjaldskrá taki gildi 1. maí 2015.
Þessi gjaldskrá var samþykkt samhljóða.

Anna María lagði til að öryrkjar og eldri borgarar utan sveitarfélagsin greiði hálft stakt gjald eða kr. 350. Tillagan var felld. Hjálmar lagði til að Gunnar Ingi taki saman tölfræði yfir fjölda eldri borgara og öryrkja utan sveitarfélagsins sem komi í sund fram til 1. okt. Sú tölfræði verður höfð til hliðsjónar við næstu endurskoðun á gjaldskrá sunlaugar,

6.
Uppsögn skólastjóra Grunnskóla Hornafjarðar
Málsnúmer 201503045
Kynnt var ákvörðun annars skólastjóra Grunnskóla Hornafjarðar, Huldu Laxdal Hauksdóttur um að segja starfi sínu lausu. Ennfremur var kynnt bókun bæjarráðs frá 16. mars sl. um endurkomu Þórgunnar Torfadóttur úr leyfi.
7.
Atvinnustefna 2015-
Málsnúmer 201501083
Skráðar voru tillögur í samræmi við ósk atvinnumálanefndar.
Skráðar voru tillögur í samræmi við ósk atvinnumálanefndar.
8.
Menntastefna sveitarfélagsins 2014-2015
Málsnúmer 201308006
Fræðslustjóri kynnti stöðu mála í vinnu við menntastefnuna.
Fræðslustjóri kynnti stöðu mála í vinnu við menntastefnuna.