Fræðslu- og tómstundanefnd
30. fundur
15. mars 2017
kl.
16:30
-
19:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson
formaður
Þóra Björg Gísladóttir
varaformaður
Þórey Bjarnadóttir
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson
aðalmaður
Sigrún Birna Steinarsdóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Framkvæmd samræmdra könnunarprófa
Miklar umræður hafa verið í þjóðfélaginu um framkvæmd samræmdra prófa í 9. og 10. bekk í byrjun mars. Fulltrúar GH lýsa framkvæmdinni þar.
Þórgunnur sagði frá því að ekkert hafi komið upp á við fyrirlögn samræmdra prófa í mars í 9. og 10. bekk. Fyrirlögin var rafræn og nemendur tóku þau á iPad. Skólarnir fá ekki eintak af prófinu og kennarar sjá því ekki spurningarnar sem rýrir leiðbeiningagildi þeirra að mati kennara.
2.
Niðurstöður Písakönnunar
Rætt var um niðurstöður Písa 2012 og 2015.
3.
Gerð gæðaviðmiða í frístundastarfi
Lagt fram til kynningar. Rætt um mikilvægi þess að hafa samfellu í skóla- og íþróttastarfi yngri barna.
4.
Málefni Þrykkjunnar, vor 2017
Áætlað hefur verið að halda starfi Þrykkjunnar úti í kjallara Vöruhússins þar til framkvæmdir um endurbætur hefjast þar um mánaðarmótin apríl/maí. Nú hefur Óskar Bragi Birgisson sem gegnt hefur starfi tómstundafulltrúa og forstöðumanns Þrykkjunnar frá því í október 2016, sagt upp störfum frá og með 31. mars n.k. Tveir valkostir eru í stöðunni; 1. Reyna að ráða starfsmann í Þrykkjuna í þennan stutta tíma. 2. Loka Þrykkjunni 1. apríl.
Staðan rædd. Ákveðið að reyna að halda úti starfsemi í Þrykkjunni fram að páskafríi ef hægt er.
5.
Vöruhús endurbætur 2017
Eitt tilboð hefur borist í endurbætur á kjallara Vöruhússins og áætlað er að framkvæmdir hefjist í apríl.
6.
Málefni Tónskólans
Jóhann fór yfir starfsemi Tónskólans í vetur. Í haust var erfitt að finna tíma fyrir hópa vegna árekstra við íþróttaæfingar, sérstklega fótbolta. Tveir kennarar skólans hafa glímt við veikindi frá jólum og fram í febrúar að annar þeirra kom til starfa en hinn er enn frá. María Rut Baldursdóttir hefur komið til kennslu í hlutastarfi. Heiðar Sigurðsson sem verið hefur í leyfi í vetur hefur sagt starfi sínu lausu. Stefnt er að því að bjóða nemendum í 3. bekk grunnskóla upp á einstaklingstíma í Tónskólanum og færa þá aldurinn fyrir byrjendur niður um eitt ár.
7.
Framtíðarskipulag skólastarfs í Hofgarði
Rætt var um yfirlit um viðhorf hagsmunaaðila um leik- og grunnskólastarf í Hofgarði. Samþykkt var tillaga um að stofna samráðshóp til að vinna að tillögum um skipulag skólamála í Öræfum til framtíðar. Í samráðshópnum verði fulltrúar foreldra leik- og grunnskólabarna þær Matthildur Þorsteinsdóttir, Unnur Eva Arnarsdóttir og Helen María Björnsdóttir, fulltrúar kennara í Hofgarði,skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar og fræðslustjóri.
8.
Velferðarteymi fundargerðir
Fundargerð lögð fram til kynningar.
9.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 24
Þar sem engir fulltrúar í Ungmennaráði gefa kost á sér í Ungmennaráð Suðurlands þarf að finna tvo fulltrúa utan ráðsins. Starfsmanni falið að gera það í samráði við Ungmennaráð Hornafjarðar hið fyrsta.