Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

37. fundur
18. október 2017 kl. 16:30 - 19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson formaður
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir 1. varamaður
Einar Smári Þorsteinsson 2. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Framkvæmd Vöruhús endurbætur 2017
Málsnúmer 201709132
Fræðslu- og tómstundanefnd skoðaði breytingarnar í kjallara Vöruhússins þar sem félagsmiðstöðin Þrykkjan verður til húsa. Nefndinni líst vel á það sem komið er og leggur áherslu á mikilvægi þess að starfsemi geti hafist þar í lok nóvember. Fram kom að starfsemi Þrykkjunnar fer fram í Heppuskóla fram að opnun á nýjum stað. Þrátt fyrir aðstöðuleysi hefur starfsemin farið vel af stað.
2.
Rekstrarkostnaður á grunnskólastofnun 2016
Málsnúmer 201709298
Farið var yfir gögn frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga fyrir árið 2016 um rekstrarstöðu grunnskólanna í sveitarfélaginu og rekstur sambærilegra skóla annars staðar á landinu. Þórgunnur vill koma á framfæri miklum áhyggjum af aukningu leiðbeinenda við kennslu, í fyrra voru fimm leiðbeinendur í kennslu en í ár eru þeir ellefu.
3.
Rekstrarkostnaður á heilsdagsígildi í leikskólum
Málsnúmer 201710043
Fulltrúar leikskólans sitja fundinn undir liðum 3, 4, og 5.
Farið var yfir gögn frá Sambandi íslenslra sveitarfélaga fyrir árið 2016 um rekstrarstöðu leikskólanna í sveitarfélaginu og rekstur sambærilegra skóla annars staðar á landinu.
4.
Bílastæði við Sjónarhól
Málsnúmer 201710056
Fjallað var um aukna umferð við leikskólann Sjónarhól á morgnana og aftur síðdegis að loknum skóladegi og hættuna sem getur skapast af þessari aukningu. Upplýst var að starfsmenn á skipulagssviði hafa þegar hafið skoðun á því hvernig hægt væri að bæta úr þessu ástandi.
5.
Ályktun um stöðu barna
Málsnúmer 201710031
Í ályktun Félags stjórnenda leikskóla koma fram áhyggjur af stöðu barna í leikskólum, meðal annars vegna of lítils rýmis, fjölda barna í hóp og lengd dvalartíma, eins og niðurstöður skýrslu OECD „Starting strong“ sýnir (http://www.oecd-ilibrary.org/education/starting-strong-
2017_9789264276116-en). Í sveitarfélaginu er unnið að úrbótum er varða aðbúnað leikskólabarna með byggingu nýs leikskóla. Fræðslu- og tómstundanefnd telur sjálfsagt að hafa ábendingar FSL til hliðsjónar við umfjöllun sveitarstjórnar um málefni og velferð ungra barna nú og til framtíðar. Fundarmenn lýstu áhuga á því að stofna til málþings eða ráðstefnu í samstarfi við FSL eða annað fagfólk um velferð ungra barna í þessu samhengi.
6.
Íþróttamiðstöð: endurbætur
Málsnúmer 201709514
Nefndin leggur til að gert verði ráð fyrir því í fjárhagsáætlun næsta árs að skipt verði um gólf á íþróttahúsi við Heppuskóla sumarið 2018. Gunnar Ingi leggur fram ítarlegri upplýsingar á næsta fundi.
7.
Gjaldskrá sundlaugar
Málsnúmer 201710058
Gunnar Ingi forfallaðist á síðustu stundu. Umfjöllun um gjaldskrá sundlaugar var frestað til næsta fundar.
8.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 26
Málsnúmer 1710004F
Fundargerð 26. fundar Ungmennaráðs lögð fram til kynningar.
9.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 27
Málsnúmer 1710009F
Fundargerð 27. fundar Ungmennaráðs lögð fram til kynningar.
10.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201709197
Fundargerð 76. fundar velferðarteymis lögð fram til kynningar.