Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

4. fundur
15. apríl 2015 kl. 16:30 - 19:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson formaður
Ingólfur Guðni Einarsson varaformaður
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson aðalmaður
Gunnar Ingi Valgeirsson embættismaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Ársskýrsla Mána 2014
Málsnúmer 201504013
Sveinn Rúnar Ragnarsson mætti á fundinn og fór yfir ársskýrslu og ársreikninga Ungmennafélagins Mána. Ungmennafélagið Máni er með elstu ungmennafélögum landsins og verður 110 ára árið 2017 af því tilefni hefur Máni hug á því í samvinnu við sveitarfélagið að endurgera gamla leikvöll félagsins á Fornustekkum. . Farið var yfir starfsemi nýstofnaðrar knattspyrnudeildar Mána.
2.
Ársskýrsla Golfklúbbs Hornafjarðar 2014
Málsnúmer 201504014
Magnús Jónasson mætti á fundinn og fór yfir fundargerð Golfklúbbs Hornafjarðar. Fram kom að samningur við sveitarfélagið er laus og beðið er eftir því að hann verði endurnýjaður.
3.
Ársskýrla Björgunarfélags Hornafjarðar 2014
Málsnúmer 201504015
Jóna Margrét Jónsdóttir mætti á fundinn og fór yfir ársskýrslu Björgunarfélags Hornafjarðar. Fram koma að búið er að endurvekja unglingadeild Björgunarfélagsins fyrir yngri en 18 ára og gerðust 11 drengir meðlimir deildarinnar. Vegna aukningar ferðamanna hefur álag á björgunarsveitina aukist og útköllum fjölgað þar sem farið er fram á aðstoð við óhöpp en fólk er ekki í raunverulegum háska.
4.
Ársskýrslur deilda Sindra 2014
Málsnúmer 201504012
Valdemar Einarsson mætti á fundinn og fór yfir ársreikning Ungmennafélagsins Sindra. Fram kom að Sindri seldi bílana sína og keypti einn 9 manna bíl og hóf samstarf við Fallastakk um kaup og rekstur á 20 manna rútu. Þar með hefur Sindri aðgang að bílstjórum með full ökuréttindi. Um 20 manns eru á launaskrá hjá félaginu en iðkendur frá grunnskólaaldri og upp úr eru um 400. Í fimleikum eru 45 iðkendur á leikskólaaldri og um 15 börn í leikskólafótbolta. Velta Sindra var um 90 milljónir á síðasta ári. Fram kom að erfitt er fyrir allar deildir Sindra gerist fyrirmyndarfélag ÍSÍ vegna lítis fjölda iðkenda og mikilla krafna ÍSÍ sem myndi auka rekstarkostnað deildanna. Sindri státar af háu hlutfalli menntaðra þjálfara. Þeim tilmælum var beint til félagsins að deildir samræmi framsetningu ársreikninga sinna þar sem m.a. kemur fram samanburður milli ára.
5.
Samþykkt USÚ vegna styrktar- og afrekssjóðs
Málsnúmer 201504017
Valdemar sat fundinn undir þessum lið og upplýsti m.a. að Sindri hefur ekki afreks- og styrktarsjóð innan sinna vébanda.
Farið var yfir samþykkt af 81. þingi ÚSÚ um að stofna einn afreks- og styrktarsjóð með aðkomu sveitarfélagins. Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur til þess að sveitarfélagið leggi sjóðnum til kr. 500.000 árlega og gangi til samninga við USÚ um sjóðinn.
6.
Nori,skráningarkerfi vegna tómstundastyrks 2014
Málsnúmer 201504020
Valdemar Einarsson sat fundinn undir þessum lið.
Farið var yfir tilboð frá Greiðslumiðlun um uppsetningu og kennslu á skráningar- og greiðslukerfinu NORI. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir að beina því til bæjarráðs að taka tilboði tvö og felur starfsmanni að fylgja málinu eftir.
7.
Reglur um tómstundastyrk
Málsnúmer 201501049
Farið var yfir tilmæli bæjarráðs, b lið fjórðu greinar breytt og er hann þá svohljóðandi: "Meginreglan skal vera sú að skipulagt tómstundastarf nái yfir 10 vikur samfellt. Hægt er að ráðstafa styrk til greiðslu styttri námskeiða, enda uppfylli námskeiðið önnur skilyrði um styrkhæfi."

8.
Endurskoðun á umgjörð leikskóla
Málsnúmer 201501051
Hjálmar kynnti stöðu mála um könnun á ytri umgjörð leikskóla.
9.
Reglur og gjaldskrá um útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins
Málsnúmer 201504035
Starfsmanni falið að fara yfir reglurnar og gjaldskrá og leggja málið fyrir á næsta fundi.