Fræðslu- og tómstundanefnd
40. fundur
20. desember 2017
kl.
16:30
-
19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson
formaður
Þóra Björg Gísladóttir
varaformaður
Þórey Bjarnadóttir
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Umf. Sindri: Erindi frá sunddeild
Gunnhildur Imsland vék af fundi undir þessum lið.
Sundiðkendur fá aðgang að sundlaug innifalið í æfingagjöldum til deildarinnar en eðlilegt er að þeir greiði fyrir aðgang utan æfingatíma eins og aðrir íbúar og iðkendur annarra greina innan Umf. Sindra og USÚ. Í samningi sveitarfélagsins og Umf. Sindra er ákveðin upphæð ætluð til þess að útdeila sundkortum (afsláttarkortum) til félagsmanna. Eðlilegt er að stjórn sunddeildarinnar nýti þessi sundkort m.a. fyrir þjálfara í samstarfi við stjórn og framkvæmdastjóra Umf. Sindra.
2.
Erindi frá stjórn fimleikadeildar Sindra
Bókun frá síðustu umfjöllun um málið: Fræðslu- og tómstundanefnd felur forstöðumanni Íþróttamiðstöðvar að kanna málið og vinna kostnaðaráætlun um framkvæmdir ef talið er að þær séu gerlegar.
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur ekki til að farið verði í að gera svampgryfju í Mánagarði þar sem það er dýr framkvæmd, engin framtíðarlausn og uppfyllir ekki öryggiskröfur, auk þess sem slíkar breytingarnar myndu raska annarri nýtingu hússins.
3.
Íþróttamiðstöð: endurbætur
Rætt var um upplýsingar sem fram komu í ítarlegri skýrslu vegna tilboða í parketgólf á íþróttahúsið á Höfn. Gunnar Ingi upplýsti að enn læki inn um stóru dyrnar á austurenda íþróttahússins og að gera þurfi bragarbót á því samhliða lagningu nýs gólfs, ennfremur þyrfti að kaupa rakastýringakerfi sem stuðlar að betra viðhaldi og endingu gólfsins. Gunnar Ingi og Hjálmar leggja til að gengið verði að tilboði 1 frá Sporttækjum. Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarráði.
4.
Skólaakstur/skólabyrjun: Hugmynd til umræðu
Rætt var um aðgang framhaldsskólanema 16-18 ára, búsettum í sveitum að skólaakstri. Fræðslu- og tómstundanefnd felur starfsmanni að skoða möguleika á að bjóða þessum hópi far með skólabílum gegn vægu gjaldi. Ennfremur var rætt um samfélagsleg áhrif þess að seinka skólabyrjun um 30-50 mínútur. Fræðslu- og tómstundanefnd felur starfsmanni að kanna viðhorf skólasamfélagsins til þess að seinka daglegri skólabyrjun til kl. 9:00. Starfsmanni er einnig falið að ræða við forsvarsmenn Fallastakks um akstursáætlun skólabíla fyrir næsta skólaár í samræmi við breytingar á nemendaskrá.
5.
Stefna HSU Hornafirði 2017
Fræðslu- og tómstundanefnd lýsir ánægju með markvissa stefnu HSU á Hornafirði þar sem áhersla er lögð á að styrkja og efla faglegt starf í þágu lýðheilsu starfsmanna og íbúa sveitarfélagins m.a. með öflugri símenntun, stuðningi við mentora og í þróun tækninýjunga bæði stað- og fjarlækninga.