Fræðslu- og tómstundanefnd
5. fundur
19. maí 2015
kl.
16:30
-
21:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ingólfur Guðni Einarsson
varaformaður
Þórey Bjarnadóttir
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir
1. varamaður
Hjördís Skírnisdóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
fræðslustjóri
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 11
Ellefta fundargerð Ungmennaráðs var tekin til umræðu. Fram kom að gera þurfi sérstaka dagskrá, á humarhátíð, fyrir ungt fólk. Umræður spunnust um að tilnefna sem fyrst fulltrúa fræðslu- og tómstundanefndar í ungmennaráð fyrir næsta ár.
2.
Skólanámskrá Krakkakots 2015
Snæfríður fór yfir nýja skólanámskrá Heilsuleikskólans Krakkakots sem allir starfsmenn hafa komið að því að vinna. Fram kom að verið er að vinna deildarnámskrár. Fræðslu- og tómstundanefnd lýsir yfir ánægju með námskrána.
3.
Skólapúls, foreldrakönnun á Krakkakoti
Snæfríður kynnti niðurstöður foreldrakönnunar úr Skólapúlsinum. Niðurstöðurnar benda til ánægju foreldra með starfið í leikskólanum en hægt er að sjá niðurstöðurnar á vef leikskólans http://www.leikskolinn.is/krakkakot/skjalasafn/krakkakot23.pdf
4.
Skóladagatal leikskólanna
Snæfríður fór yfir skóladagatal leikskólanna og var það samþykkt.
Snæfríður fór yfir skóladagatal leikskólanna og samþykkti nefndin það.
5.
Ósk um viðbótar starfsdag á leikskólum
Snæfríður fylgdi úr hlaði ósk leikskólastjóranna um að halda auka starfsdegi inni. Fram kom að undanfarin tvö ár hafa leikskólarnir unnið að innleiðingu nýrrar aðalnámskrár og að nýjum skólanámskrám. Framundan er svo mikil skipulagsvinna og áætlanagerð í leikskólunum vegna innleiðingar verkefnisins "leið til árangurs". Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir að leikskólarnir fái þennan aukadag til ársins 2017.
6.
Endurskoðun á umgjörð leikskóla
Ragnhildur fór yfir minnisblað um stöðu könnunar um ytri umgjörð leikskóla. Fram kom að 15. maí höfðu 187 svör borist. Alls hafa verið sendar þrjár ítrekanir til þátttakenda. Fræðsluskrifstofunni barst sú ábending að þátttakendur sem fengu senda ítrekun virtust geta svarað spurningarlistanum aftur og sent inn svar. Í svari frá Félagsvísindastofnun kom fram að um tæknileg en um leið mannleg mistök hafi verið að ræða og beðist var velvirðingar á þeim. Einnig kom fram að við skoðun gagnanna komi fram nöfn og netföng þeirra sem hafa svarað og eins tímasetningar þegar svörun lauk. Það er því auðvelt að sjá hvort og þá hverjir svöruðu oftar en einu sinni, og hvaða svör séu ?upprunalegu? svörin. Félagsvísindastofnun ábyrgist að eyða út svörum þeirra sem svöruðu oftar en einu sinni áður en persónueinkenni verða afmáð.
7.
Skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar
Hulda fór yfir skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar. Hún lýsti því að almenn óánægja sé meðal foreldra og starfsmanna með starfsdag 18. janúar. Urðu umræður um málið og samþykkti fræðslu- og tómstundanefnd að færa starfsdag grunnskólans frá 18. janúar til 4. janúar. Tilgangurinn er að halda samfellu í skólastarfi.
8.
Nemendafjöldi í Grunnskóla Hornafjarðar
Ragnhildur fór yfir nemendaþróun og kennslustundafjölda næsta ár, einnig þætti í vinnumati í nýjum kjarasamningi. Hulda greindi frá því að það fækki um eina stöðu í kennarahópnum, ekki þarf þó að segja neinum upp. Hún lýsti verklagi við innleiðingu skipulags og áætlana í "leið til árangurs" ásamt vinnu í teymum um heilbrigði og velferð og að þau teymi fái yfirvinnu greidda fyrir framlag sitt. Hulda fór yfir árangur af "leið til árangurs" þar sem framfarir hafa orðið verulegar í lestri.
9.
Skóladagatal Grunnskólans í Hofgarði
Pálína fór yfir skóladagatal Grunnskólans í Hofgarði. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkti dagatalið. Fram kom að skólinn er orðinn afar fámennur 4-5 nemendur næsta vetur.
10.
Ungmennaþing
Fram kom að þingið gekk vonum framar en í því tóku þátt 100 ungmenni sem unnu í 10 hópum og voru afar virk. Fram kom einnig að allir sem mættu voru nemendur í skóla, enginn af vinnumarkaði. Rædd var samvinna við félagsmálafulltrúa FAS og þörf fyrir ungmennahús. Ef Þrykkjan á að nýtast bæði sem félagsmiðstöð fyrir grunnskólanemendur og ungmennahús fyrir eldri ungmenni þarf sá aldurshópur að fá að koma að hönnun rýmisins og taka þarf tillit til þarfa þeirra. Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur til þess að Þrykkjuráð og nemendaráð FAS fundi saman um málið og komi með tillögur.Ungmennaráð hefur sent tillögur af Ungmennaþinginu til FAS og áætlar að senda fleiri nefndum og ráðum tillögur sínar. Einnig var rætt um leiðir til þess að auka lýðræðisvitund ungs fólks og þátttöku þeirra.
11.
Skýrsla tómstundafulltrúa 2015
Dagbjört tæpti á aðalatriðum í skýrslu tómstundafulltrúa þar sem hún lýsti því m.a. hvernig þátttakendur breyttust úr því að vera þiggjendur yfir í að vera gerendur í eigin félagslífi. Besti vitnisburður um það er sú sprenging sem orðið hefur í mætingu í Þrykkjuna en mest hafa komið 80 þátttakendur á viðburð. Nefndarmenn voru allir sammála um að í Þrykkjunni hefur verið unnið afar gott starf í vetur.
12.
Endurbætur í Vöruhúsi
Vilhjálmur fór yfir skýrslu um endurbætur í Vöruhúsi og leiddi fundarmenn í gengum teikningar um hugsanlegar breytingar á húsinu. Ragnhildur fór yfir minnisblað um fund sem haldinn var í skólaeldhúsinu í Heppuskóla og yfir kostnaðaráætlun sem Björn Imsland vann um nauðsynlegar breytingar. Umræður sköpuðust um nýtingu og skipulag. Fræðslu- og tómstundanefnd tekur undir þá forgangsröðun sem fram kemur í skýrslunni að flytja félagsmiðstöðina í kjallarann og klára umgjörð um Fab Labið. Nefndin er sammála um að dýrasta og nauðsynlegasta framkvæmdin sé að klæða húsið að utan til að koma í veg fyrir frekari skemmdir þar sem húsið er á undanþágu nú þegar varðandi starfsleyfi. Jafnframt óskar nefndin eftir því að starfsmenn vinni áfram í málinu ásamt starfsmönnum á tækni- og umhverfissviði.
13.
Velferðarteymi fundargerðir
Farið var yfir kynningu á verkefninu "Heilsueflandi samfélag" og voru nefndarmenn sammála markmiðum þess. Fræðslu- og tómstundarnefnd vísar málinu til afgreiðslu í bæjarráði.
14.
Erindi frá frjálsíþróttadeild Sindra
Farið var yfir erindi frá Frjálsíþróttadeild Sindra og skýrslu Zophoníasar Torfasonar þar sem fram koma ábendingar um nauðsynlegar úrbætur á íþróttavellinum. Málinu vísað til vallarnefndar um að gera áætlun um úrbætur, kostnaðarmat og forgangslista.
15.
Suðursveit efling byggðar, þjónusta og húsnæði
Farið var yfir bréf frá þremur íbúum og atvinnurekendum í Suðursveit um uppbyggingu grunnþjónustu þar. Fræðslu- og tómstundanefnd felur starfmanni að afla gagna og vinna að málinu í samvinnu við aðra aðila.
16.
Dagvistun/leikskóli í Öræfum
Farið var yfir bréf frá foreldrum og íbúum í Öræfum þar sem óskað er eftir því að Sveitarfélagið setji á stofn leikskóla eða dagvist fyrir börn á forskólaaldri. Fræðslu- og tómstundanefnd felur starfmanni að afla gagna og vinna að málinu í samvinnu við aðra aðila.