Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

6. fundur
15. júní 2015 kl. 16:30 - 19:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson formaður
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson aðalmaður
Anna María Kristjánsdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Gjaldskrá Vöruhúss 2015
Málsnúmer 201505075
Gjaldskrá Vöruhússins fyrir árið 2015 og Fab Lab var samþykkt.
2.
Endurbætur í Vöruhúsi
Málsnúmer 201505034
Farið var yfir gögn um fyrirhugaðar breytingar í kjallara Vöruhúss og athugasemdir sem borist hafa vegna þeirra. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir tillögur að breytingum í kjallara hússins og vísar þeim ásamt kostnaðaráætlun til bæjarráðs til afgreiðslu.

3.
Verk- og þróunaráætlun grunnskóla Hornafjarðar
Málsnúmer 201506042
Eygló Illugadóttir skólastjóri fór yfir starfsþróunaráætlun fyrir næsta skólaár og áætlun um verkefna- og þróunarstarf 2015-2018 fyrir Grunnskóla Hornafjarðar, sem finna má á heimasíðu skólans.
4.
skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar
Málsnúmer 201505047
Eygló fór yfir ósk um breytingar á skóladagatalinu. Hún hefur borið þær undir leikskólastjórana sem hafa samþykkt breytingarnar. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir breytingarnar. Skóladagatal leikskólanna verður lagt fyrir á fundi í ágúst.
5.
Skóladagatal Tónskólans 2015-2016
Málsnúmer 201505078
Jóhann fór yfir breytingar á skóladagatali tónskólans fyrir næsta skólaár og verður það lagt fyrir til samþykktar á fundi í ágúst.
6.
Endurskoðun á umgjörð leikskóla
Málsnúmer 201501051
Skýrsla Félagsvísindastofnunar um niðurstöður könnunar á ytri umgjörð leikskóla var lögð fram til kynningar. Skýrslan verður birt á heimasíðu sveitarfélagsins www.hornafjordur.is. Margrét Ingólfsdóttir skólastjóri Lönguhóla vill leggja áherslu á að tekið verði mið af faglegu starfi við alla ákvarðanatöku. Ákveðið er að halda almennan kynningarfund við fyrsta tækifæri þar sem fulltrúi félagsvísindastofnunar kynnir niðurstöður könnunarinnar.
7.
Dagvistun/leikskóli í Öræfum
Málsnúmer 201505058
Kynnt var minnisblað og fleiri gögn um frumathugun að úrbótum í leikskóla- eða dagvistunar málum í Öræfum. Næstu skref eru að gera faglega úttekt á húsnæðinu í Hofgarði og kostnaðaráætlun um nauðsynlegar breytingar til þess að endurstofna leikskóladeild þar. Einnig þarf að athuga mögulega mönnun í samráði við skólastjóra grunnskólans,
8.
Suðursveit efling byggðar, þjónusta og húsnæði
Málsnúmer 201505056
Kynnt var minnisblað og fleiri gögn um frumathugun að úrbótum í leikskóla- eða dagvistunar málum í Suðursveit. Næstu skref eru að gera faglega úttekt á húsnæðinu á Hrollaugsstöðum og kostnaðaráætlun um nauðsynlegar breytingar til þess að stofna leikskóla eða leikskóladeild þar. Einnig þarf að kanna möguleika á mönnun.
9.
Heilsueflandi samfélag
Málsnúmer 201506028
Fræðslu- og tómstundanefnd er sammála markmiðum verkefnis um "Heilsueflandi samfélag" og telur þau eiga samhljóm með grunnþættinum heilbrigði og velferð í námskrám leik- grunn- og framhaldsskóla. Það er skoðun nefndarinnar að sveitarfélagið eigi að taka þátt í verkefninu. Nefndin telur nauðsynlegt að fundinn verði einn ákveðinn aðili til að halda utan um verkefnið og fylgja því eftir. Velferðarteymið gæti verið bakland þessa aðila.
10.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201302035
Fræðslu- og tómstundanefnd tekur undir áhyggjur velferðarteymis af skorti á starfsfólki í leikskóla- og dagvistarmálum í sveitarfélaginu.