Fræðslu- og tómstundanefnd
7. fundur
19. ágúst 2015
kl.
16:30
-
19:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson
formaður
Ingólfur Guðni Einarsson
varaformaður
Þórey Bjarnadóttir
aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson
aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
fræðslustjóri
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Endurskoðun á umgjörð leikskóla
Hjálmar rakti ákvörðun meirihlutans um að fá félagsvísindastofnun HÍ til þess að leggja fyrir skoðanakönnun um umgjörð leikskólanna og að byggja ákvörðun um framtíðarumgjörð leikskóla á niðurstöðum hennar. Síðan opnaði hann á umræðu um þá skýrslu og rekstrargreiningu KPMG.
Hjálmar fór yfir drög að áætlun um breytingar á ytri umgjörð leikskólanna og ítrekaði að um væri að ræða hraðasta mögulega ferli.
Fram komu athugasemdir um áætlun um uppsagnir starfsfólks.
Margrét las upp spurningar fyrir hönd leikskólastjóranna og óskaði eftir því að svör nefndarmanna yrðu bókuð. Er fræðslunefnd ánægð með þessi drög, gott að heyra frá hverjum og einum?
Hefur meiri hlutinn kynnt sér hvernig sameining hefur gengið annars staðar?
Hafið þið lesið skýrslu Reykjavíkurborgar um sameiningu í leikskólum?
Teljið þið að tryggt sé að hagsmunir nemenda séu hafðir að leiðarljósi í þessum drögum?"
Hafa fagleg sjónarmið verið höfð að leiðarljósi í þessari vinnu?
Bent var á að erindi til nefnda sveitarfélagsins ætti að berast tveimur sólarhringum fyrir fund. Margrét og Snæfríður lögðu síðan fram eftirfarandi bókun fyrir hönd leikskólastjóranna: "Við leikskólastjórar viljum deila áhyggjum okkar á að fyrirhugað sé að setja leikskólastarf í uppnám tvisvar sinnum á næstu tveimur árum. Þær breytingar sem eru fyrirhugaðar í byrjun næsta árs og haust 2017 munu hafa mikil áhrif á innra starf, starfsfólk og börn beggja leikskólanna og mun því raska því góða starfi sem verið er að vinna og þróa. Það er á ábyrgð fræðslunefnda samkvæmt lögum að vera með eftirlit með skólastarfi og ábyrgjast að lögum, reglum og námskrám séu fylgt. Við vitum að það er illmögulegt þegar skólastarfi og starfsfólki er hleypt ítrekað í uppnám og algjört virðingarleysi gagnvart öllum sem að leikskólunum koma. Einnig höfum við áhyggjur af hvernig ganga muni að manna leikskólana og halda því góða fólki sem er, faglærðu og ófaglærðu. Hver á að sjá um daglegan rekstur og stjórnun Lönguhóla og Krakkakots eftir að núverandi leikskólastjórar hafa lokið störfum í byrjun næsta árs?"
Jafnframt var bent á Leiðbeiningar fyrir rekstraraðila vegna samreksturs leik,- grunn- og tónlistarskóla, sem finna má á vef sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fram kom gagnrýni á drögin og var m.a. gagnrýnt að flýtirinn væri mikill og að tímasetningar í þessum drögum hefðu hleypt starfinu í uppnám. Fram kom að á fundum með starfsfólki hafi verið gengið út frá því að starf leikskólanna verði óbreytt fram að sumarfríi 2017. Einnig höfum við áhyggjur af hvernig ganga mun að manna leikskólana og halda því góða fólki sem er, faglærðu og ófaglærðu.
Hver á að sjá um daglegan rekstur og stjórnun Lönguhóla og Krakkakots eftir að núverandi leikskólastjórar hafa lokið störfum í byrjun næsta árs?
Leikskólastjórarnir lögðu fram eftirfarandi breytingartillögu um dagsetningar: í nóv. 2016 verði auglýst eftir nýjum leikskólastjóra og hann ráðinn í febrúar 2017. Samningum við leikskólastjóra verði sagt upp í mars 2017 og að þeir klári skólaárið með starfsfólkinu fram að sumarfríi 2017.
Fulltrúar starfsmanna vildu fá að vita hvaða skilaboð þær ættu að flytja starfsfólki af þessum fundi. Skilaboðin eru þau að dagsetningar séu í endurskoðun og að farið verði eftir kjarasamningum.
Fulltrúar minnihlutans lýsa yfir áhyggjum af því að ekki sé unnið að breytingum í samvinnu við starfsfólk.
Meirihluti fræðslu- og tómstundanefndar er tilbúinn að endurskoða dagsetningar sem settar eru fram í drögum að áætluninni í samráði við leikskólastjóra og stefnir að því að leggja fram lokaáætlun á næsta fundi.

2.
Skóladagatal leikskólanna
Framlagt skóladagatal leikskólanna fyrir skólaárið 2015- 2016 var samþykkt samhljóða.
3.
Skóladagatal Tónskólans 2015-2016
Skóladagatal Tónskólans var samþykkt samhljóða.
4.
Starfshópur um íþróttir
Eyrún Unnur og Páll Róbert fóru yfir skýrsluna sem byggð er á niðurstöðum SVOT greiningar innan íþróttahreyfingarinnar. Helstu ógnanir eru fækkun iðkenda sem skiptast niður á margar greinar og óstöðugleiki í þjálfaramálum. Tækifæri liggja í því að nýta tíma og rými þróttahúss við Heppuskóla betur bæði sumar og vetur.
Rætt var um framkvæmd á samningi við Sindra um sumarafleysingar í íþróttahúsi, Bárunni og á völlunum. Starfsmanni falið að meta reynsluna af samningnum.
Rætt var um erfiðleika við að manna stjórnir íþróttagreina og að gæta þurfi meira jafnræðis í að útdeila verkefnum á vegum sveitarfélagsins.
Fulltrúar minnihlutans leggja til að gerð verði skoðanakönnun meðal iðkenda og foreldra um forgangsröðun uppbyggingar íþróttamannvirkaja og íþróttaaðstöðu.
Fræðslu- og tómstundanefnd fagnar skýrslunni og áformar að skoða hana með stjórn USÚ og aðildarfélögum þess. Nefndin felur starfsmanni að skoða nánar þá þætti sem snúa að ábyrgð sveitarfélagsins og koma þeim í farveg.

5.
Samningur um aðild að tómstundastyrkjakerfi Sveitarfélagsins
Þetta mál veður tekið fyrir á aukafundi 26. ágúst n.k.
6.
Menntastefna sveitarfélagsins 2015-2030
Þetta mál veður tekið fyrir á aukafundi 26. ágúst n.k.
Þetta mál veður tekið fyrir á aukafundi 26. ágúst n.k.
7.
Samingur Sambands sveitarfélaga vegna talmeinaþjónustu
Þetta mál veður tekið fyrir á aukafundi 26. ágúst n.k.
Þetta mál veður tekið fyrir á aukafundi 26. ágúst n.k.
8.
Þjóðarsáttmáli um læsi