Fræðslu- og tómstundanefnd
8. fundur
26. ágúst 2015
kl.
16:30
-
18:35
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson
formaður
Ingólfur Guðni Einarsson
varaformaður
Þórey Bjarnadóttir
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson
aðalmaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Menntastefna sveitarfélagsins 2015-2030
Ragnhildur fór yfir drög að menntastefnunni þar sem fram kom að um fyrstu drög er að ræða og skjalið eigi eftir að breytast. Gunnhildur benti á að kannski mætti endurskoða notkun á hugtakinu "nemandi" er notað í yfirlitsmyndinni. Rætt var um hvort grunnþættir menntunar ættu að koma fyrr í stefnunni og áherslur stefnunnar á eftir.
Ákveðið var að halda vinnufund með ráðgjafa- og álitshópnum um menntastefnuna og aðgerðaáætlun fimmtudaginn 10. sept. kl. 16:30.
Ákveðið var að halda vinnufund með ráðgjafa- og álitshópnum um menntastefnuna og aðgerðaáætlun fimmtudaginn 10. sept. kl. 16:30.
2.
Samningur um aðild að tómstundastyrkjakerfi Sveitarfélagsins
Farið var yfir drög að samningi um aðild að tómstundastyrk og hann samþykktur með breytingum.
3.
Samningur Sambands sveitarfélaga vegna talmeinaþjónustu
Ragnhhildur kynnti samninginn.
4.
Þjóðarsáttmáli um læsi
Þann 14. september n.k. kemur mennta- og menningarmálaráðherra til Hornafjarðar til þess að undirita samning við sveitarfélagið um "Þjóðarsátt um læsi."