Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

86. fundur
19. janúar 2022 kl. 14:30 - 16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir formaður
Kristján Örn Ebenezersson 3. varamaður
Nejra Mesetovic aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir aðalmaður
Claudia Maria Hildeblom 1. varamaður
Alexandra Guðrúnardóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Færanlegt húsnæði við leikskólann
Málsnúmer 202201046
Fimmtudaginn 13. janúar hittust fyrir utan leikskólann Maríanna, Elínborg og Svava frá leikskólanum, Íris Heiður, Þóra Björg, Nejra og Claudia frá fræðslu- og tómstundanefnd og þrír starfsmenn bæjarins Brynja, Björn og Þórgunnur. Þar voru aðstæður skoðaðar og síðan fór hópurinn í fundarsalinn á Víkurbraut 24 og ræddi málin og skoðaði líka teikningar af færanlegum stofum sem setja á upp við Ársali á Sauðárkrók.

Engar augljósar lausnir blasa við og var niðurstaðan að Brynja og Björn ætla að vera í sambandi við arkitekt sem þekkir til á svæðinu og fá hann til að koma með hugmyndir að lausn. Á sama tíma ætla starfsmenn leikskólans að huga að þarfagreiningu fyrir leikskólann.
2.
Styrkir fræðslu- og tómstundanefndar
Málsnúmer 202201015
Einungis tvær umsóknir bárust til fræðslu- og tómstundanefndar að þessu sinni.
Í ljósi ástandsins og fárra umsókna ákvað fræðslu- og tómstundanefnd að deila ekki út allri styrkupphæðinni því líklegt er að sóst verði eftir stuðningi við verkefni síðar á árinu ef Covid sleppir af okkur hendinni. Ákveðið að styrkja Barnastarf Hafnarkirkju um 50.000 krónur og Skotfélagið um 150.000 kr.
3.
Lykiltölur í rekstri sveitarfélaga 2020 - leik og grunnskóla
Málsnúmer 202201051
Í lok hvers árs setur Samband íslenskra sveitarfélaga á heimasíðu sína samantekt á helstu tölum í rekstri sveitarfélaga á landinu fyrir árið á undan. Þar er gerður margskonar samanburður á rekstri leik- og grunnskóla og þar má einnig finna þetta talnaefni í myndrænni útsetningu á Íslandskorti. https://www.samband.is/verkefnin/fjarmal/talnaefni/arsreikningar-sveitarfelaga/
Farið yfir helstu lykiltölur. Samkvæmt upplýsingum frá sambandinu þá er skólaaksturinn með í flestum lykiltölum en þó ekki í "Rekstrarkostnaði á nemenda" og þar er innri leigan ekki heldur reiknuð með.
4.
Framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna
Málsnúmer 202006066
Á síðasta ári var gerð tilraun til að bjóða íbúum í Suðursveit, Mýrum og Nesjum upp á að nýta sér frístundaaksturinn síðdegis þeim að kostnaðarlausu. Verkefnið var unnið með styrk frá Byggðastofnun.
Lítil sem engin þátttaka var hjá almenningi og telja rekstraraðilar að almenningsakstur og frístundaakstur fari ekki saman. Því verður ekki haldið áfram með þessa tilraun að svo stöddu en frístundaaksturinn heldur áfram.
5.
Hönnun viðbyggingar V/sundlaug/líkamsrækt
Málsnúmer 202011051
Hönnun líkamsræktarstöðvar við sundlaugina.
Brynja Dögg Ingólfsdóttir fór yfir teikningar af líkamsræktarstöðinni og sýndi þær í þrívídd. Fram kom að auk þess að vera glæsileg bygging þá verður þetta fyrsta umhverfisvottaða byggingin á Hornafirði. Fundarmönnum leist vel á teikningar og mæltu með því að sýna þjálfurum og forsvarsmönnum deilda þær svo þeir gætu komið með athugasemdir ef þeir hafa. Reiknað er með því að hefjast handa við framkvæmdir á vordögum.
6.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 68
Málsnúmer 2201005F
Fundargerð lögð fram og samþykkt.
7.
Lýðheilsuráð 2021-2022
Málsnúmer 202110056
Fundargerðir lýðheilsuráðs frá 16. nóvember 2021 og 18. janúar 2022. - Síðari fundargerðin kemur ekki inn fyrr en á miðvikudagsmorgun.
Fundargerðir lagðar fram og samþykktar.