Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

87. fundur
16. febrúar 2022 kl. 16:15 - 18:15
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Nejra Mesetovic aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson aðalmaður
Alexandra Guðrúnardóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 69
Málsnúmer 2202004F
Fundargerð tekin fyrir og samþykkt.
2.
Vöruhús - skýrsla um starfsemina 2021
Málsnúmer 202202027
Vilhjálmur fór yfir skýrsluna og svaraði spurningum fundarmanna.
3.
Reglur um frístundastyrk
Málsnúmer 202202026
Tillaga að breytingum á reglum um frístundastyrk lagðar fyrir. Breytingarnar eru minniháttar og snúa fyrst og fremst að orðalagi og breytingum sem hafa orðið á því hvernig hann er nýttur.

Fræðslu- og tómstundanefnd fór yfir reglurnar, samþykkti og vísaði til bæjarráðs.
4.
Hinsegin vika á Höfn
Málsnúmer 202202023
Mikil vakning hefur orðið á síðustu mánuðum og misserum um hverskonar jafnréttismál ekki síst málefni minnihlutahópa. Hinsegin fólk er minnihlutahópur og nú er áhugi á að vera með sérstaka vitundarvakningu í sveitarfélaginu gagnvart hinsegin fólki og blása til hinsegin viku. Markmiðið með henni er að auka fræðslu og skapa umræður. Fræðslusvið og lýðheilsuráð í samvinnu við ungmennaráð, skólana, félagsmiðstöðina, Samtökin 78 og vonandi marga aðra standa fyrir vitundarvakningunni og eru áhugasamir hvattir til að koma hugmyndum að dagskrá inn til tómstundafulltrúa sveitarfélagsins.
Herdís reifaði í stuttu máli helstu hugmyndir sem fram hafa komið um dagskrá og að hún væri að hvetja fólk og fyrirtæki til að taka þátt og koma með hugmyndir. Fulltrúar í ungmennaráði komu með margar hugmyndir og eru spenntir fyrir vikunni sem verður vonandi í lok mars.
5.
Færanlegt húsnæði við leikskólann
Málsnúmer 202201046
Verið er að skoða hugmyndir og útfærslur á viðbyggingu við Sjónarhól og möguleikum á stækkun lóðar.
Lagðar voru fram hugmyndir frá Betula landslagsarkitektar um mögulegar útfærslur á stækkun leikskólans. Í þeim tillögum er tekið tillit til þess að lóðin verði að stækka með fleiri börnum. Fræðslu- og tómstundanefnd auk fulltrúa leikskólans leggja til að fengnir verði arkitektar til að skoða betur útfærslur á tillögum 1 og 2. Í tillögu 1 er ekki gengið á leikskólalóðina en í tillögu 2 er gengið á leikskólagarðinn og þá væri æskilegt að fá lóðina upp á hólnum undir leikskólagarð.
6.
Reglur um starfsemi leikskóla
Málsnúmer 202103043
Breytingar á reglum um starfsemi leikskóla lagðar fyrir til samþykktar. Breytingarnar snúa að ýmsum þáttum svo sem innritun og meiri fyrirsjáanleika í leikskólastarfinu en einnig meiri sveigjanleika gagnvart foreldrum.Á allra næstu dögum verður lögð fyrir foreldrakönnun á leikskólanum þar sem spurt verður um hug foreldra til að loka skólanum kl. 15:00 á föstudögum til að auðvelda fyrirkomulag á styttingu vinnuvikunnar í leikskólanum. Ef niðurstöður könnunarinnar verða jákvæðar er stefnt að því að gera tilraun frá 1. maí - 1. október 2022 með að loka leikskólanum kl. 15:00 á föstudögum. Ef lítill sem enginn hljómgrunnur er meðal foreldra verður málið endurskoðað.
Reglurnar ræddar, samþykktar og vísað til bæjarráðs.
7.
Börn og foreldrar af erlendum uppruna
Málsnúmer 202202015
Fræðslu- og tómstundanefnd bárust þrjár ábendingar eða fyrirspurnir frá fjölmenningarráði. 1. Opnun á Kátakoti - ósk um að möguleiki sé fyrir foreldra sem vinna til 16:00 að sækja börnin eftir 16:00.2. Vistunarúrræði fyrir börn á grunnskólaaldri eftir að skóla lýkur á vorin og fram í júlí.3. Hvað gerist þegar börn fá ekki pláss á leikskóla eða pláss hjá dagforeldri við 12 mánaða aldur?
1. Starfsmanni nefndarinnar falið að ræða við skólastjóra Grunnskóla Hornafjarðar og starfsfólk í Kátakoti um fyrirkomulag opnunar þar.
2. Starfsmanni falið að skoða möguleika á gæslu eða vistunarúrræðum í júní.
3. Starfsmanni einnig falið að sjá til þess að skýrar leiðbeiningar berist til foreldra um hvað er í boði þegar barn kemst ekki að á leikskóla eða dagforeldris við 12 mánaða aldur.
8.
Útboð Hofgarður endurbætur 2022
Málsnúmer 202201038
Eitt tilboð barst í framkvæmdir í Hofgarði. Það var frá Þingvaði ehf og hljóðaði upp á 62.650.395 kr sem er 7% yfir kostnaðaráætlun. Bæjarráð samþykkti að verða við tilboðinu og reiknað er með því að framkvæmdir hefjist 8. mars og þeim verði lokið 1. ágúst.Á meðan á framkvæmdum stendur færist skólastarf í leik- og grunnskólanum í Hofgarði yfir í Efribæ á Fagurhólsmýri.
Fræðslu- og tómstundanefnd lýsti yfir ánægju með að framkvæmdir séu að hefjast.
9.
Skýrslur um börn og netmiðla
Málsnúmer 202202024
Fjölmiðlanefndir á Norðurlöndunum og í öðrum ríkjum álfunnar hafa með reglubundnumhætti kannað hvernig börn og ungmenni nota fjölmiðla og samfélagsmiðla. Með því að gera reglubundnar kannanir og vinna úr þeim tölfræðilegu gögnum sem safnað er má fylgjast með þeim breytingum sem verða á notkun. Á grundvelli upplýsinganna er hægt að eiga samtal um ólíka notkun, gefa góð ráð og búa til fræðsluefni fyrir ólíka aldurshópa. Síðasta vor svöruðu tæplega 6000 ungmenni á Íslandi á aldrinum 9-18 ára umfangsmikilli könnun og hér eru niðurstöður fyrstu þriggja hlutanna kynntir.