Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

9. fundur
16. september 2015 kl. 16:30 - 19:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson formaður
Ingólfur Guðni Einarsson varaformaður
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
eftirfylgni með könnun á innleiðingu laga
Málsnúmer 201508024
Fræðslustjóri kynnti bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins þar sem bent er á að nemendur Grunnskóla Hornafjarðar hafi ekki aðgang að náms- og starfsráðgjöf hjá aðila sem uppfyllir skilyrði laga um slíka ráðgjöf. Fram kom að auglýst var s.l.vor eftir náms- og starfsráðgjafa og auglýst verður aftur næsta vor.
2.
Fyrirspurn um undanþágur og fjarvistir í samræmdum könnunarprófum
Málsnúmer 201509002
Farið var yfir fyrirspurn Menntamálastofnunar og svör fræðslustjóra.
3.
Endurskoðun á umgjörð leikskóla
Málsnúmer 201501051
Meirihluti fræðslu- og tómstundarnefndar leggur fram eftirfarandi tillögu:
Í ljósi niðurstöðu úr skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands og rekstrarniðurstöðu KPMG verði leikskólarnir Krakkakot og Lönguhólar sameinaðir undir eitt þak. Einn leikskóli fyrir börn á leikskólaaldri taki til starfa eigi síðar en í ágúst 2017.
Þar sem um veigamikla ákvörðun í rekstri leikskóla á Höfn er að ræða, er málinu vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar til umfjöllunar. Tillagan var samþykkt með atkvæðum fulltrúa sjálfstæðisflokks og 3. framboðsins. Fulltrúar framsóknarflokksins sátu hjá.

Umræður urðu um 4. drög að aðgerðaráætlun og hvernig ferlið ætti að vera. Fræðslu- og tómstundanefnd beinir þeim tilmælum til bæjarráðs að stýrihópur verði skipaður í kjölfar ákvörðunar um sameiningu leikskóla. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að stýrihópur verði skipaður á eftirfarandi hátt: Einn fulltrúi frá hverju framboði, einn fulltrúi foreldra, einn fulltrúi starfsmanna leikskólanna og leikskólastjórar beggja leikskólanna.Fræðslustjóri er starfsmaður stýrihópsins. Nefndin leggur áherslu á að sýrihópurinn leggi fram endanlega tillögu að aðgerðaáætlun og leiði vinnuna um sameiningarferlið.

4.
Starfshópur um íþróttir
Málsnúmer 201502062
Eyrún fór yfir ýmis atriði, fram kom að íþróttahúsið er ekki fullnýtt, bæta þarf æfingasvæði fyrir fótbolta bæði á Sindravöllum og við Mánagarð. Rætt var um samning við Sindra um sumarafleysingar í íþróttahúsi og á Sindravöllum og um skipulag starfseminnar árið um kring. Forstöðumanni íþróttamannvirkja falið að skoða skipulagið.
Lögð var fram tillaga um að formaður starfshóps um íþróttir, og starfsmaður hópsins fundi með fulltrúum úr stjórnum USÚ, Sindra og Mána til þess að sameinast um tillögur að forgangsröðun framkvæmda sem æskilegt er að fara í á næsta ári og leggja fyrir nefndina í nóvember.

Á fundi í fræðslu- og tómstundanefndar 19. ágúst s.l. lögðu fulltrúar framsóknar fram tillögu um að gerð verði skoðanakönnun meðal iðkenda og foreldra um forgangsröðun uppbyggingar íþróttamannvirkja og íþróttaaðstöðu. Það er skoðun meirihluta fræðslu- og tómstundanefndar að ekki sé þörf á skoðanakönnun um þetta málefni. Skýrsla hóps um Íþróttamál liggur fyrir og þar kemur skýrt fram hvað þarf til, til að bæta aðstöðu. Það er svo í höndum kjörinna fulltrúa að ákveða forgangsröðun stærri og dýrari framkvæmda.
5.
Flutningur fimleikastarfs í Mánagarð
Málsnúmer 201509054
Einar Smári vék af fundi undir þessu máli.
Fræðslu- og tómstundanefnd tekur jákvætt í erindi stjórnar fimleikadeildar Sindra um að færa starfsemi sína í Mánagarð. Nefndin felur starfsmönnum í samvinnu við fimleikadeildina að gera úttekt á hvað muni þurfa til, svo fimleikaþjálfun geti farið fram í Mánagarði. Starfsmönnum er einnig falið að ræða málið við hagsmunaaðila sem hafa aðstöðu í húsinu, vinna tillögu að lausn á akstri iðkenda og skila kostnaðaráætlun um þessi verkefni.

6.
Dagvistun/leikskóli í Öræfum
Málsnúmer 201505058
Þetta mál verður tekið fyrir á aukafundi á morgun fimmtudaginn 17. september
7.
Dagvistun/leikskóli í Suðursveit
Málsnúmer 201509041
Þetta mál verður tekið fyrir á aukafundi á morgun fimmtudaginn 17. september
8.
Tilnefningar í Ungmennaráð 2015-2016
Málsnúmer 201509026
Þetta mál verður tekið fyrir á aukafundi á morgun fimmtudaginn 17. september
9.
Eftirfylgni með könnun á innleiðingu laga um grunnskóla
Málsnúmer 201508051
Þetta mál verður tekið fyrir á aukafundi á morgun fimmtudaginn 17. september
10.
Ósk um framlengingu á leigusamningi á Hrollaugsstöðum
Málsnúmer 201509056
Þetta mál verður tekið fyrir á aukafundi á morgun fimmtudaginn 17. september