Fara í efni

Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs

68. fundur
28. janúar 2014 kl. 18:00 - 00:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Ásgeir Gunnarsson formaður
Guðmundur Heiðar Gunnarsson aðalmaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir framkvæmdastjóri HSSA
Dagskrá
1.
Endurskoðun skipulagsskrár Gjafa og minningarsjóðs Skjólgarðs
Málsnúmer 200810093
Það kemur fram í bréfi dagsett 18.maí 2004 að leggja niður Gjafa- og minningasjóð Skjólgarðs nr. 1506 á sjóðaskrá. Andvirði sjóðsins rann til núverandi Gjafa- og minningasjóð Skjólgarð í vörslu Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Unnið að endurskoðun á starfsreglum sjóðsins. Reglurnar verða lagðar fyrir á næsta fundi stjórnar HSSA.
2.
Staða Gjafa og minningarsjóðs Skjólgarðs
Málsnúmer 201211080
Farið yfir ársreikning Gjafa- og minningasjóðs Skjólgarðs og hann samþykktur samhljóða.
3.
Peningagjöf til HSSA
Málsnúmer 201310074
HSSA barst peningagjöf frá ættingjum Ingibergs Sigurðssonar frá Syðri Firði til tækjakaupa að upphæð 4.950.000 kr. Á 66.fundi Gjafa- og minningasjóðs Skjólgarðs var samþykkt að gjafasjóðurinn hafi umsjón með tækjakaupunum. Ákveðið hefur verið að kaupa Solid State höfuðljós að verðmæti 104.710 kr., Canon Ixus myndavél að verðmæti 27.005 kr., Eyrna- og augnskoðunarsett að verðmæti 166.218 kr., Swelab Alfa blóðrannsóknartæki að verðmæti 1.065.000 kr., Tablo áhaldaþvottavél að verðmæti 1.073.865 kr., 5 stk blóðþrýstingsmæla að verðmæti 50.199 kr.
4.
Rafræn minningarkort
Málsnúmer 201205075
Framkvæmdastjóri hefur verið í samskiptum við Hugsmiðjuna varðandi útfærslu á rafrænum minningakortum. Hugsmiðjan á erfitt með að áætla fjölda vinnustunda við uppsetninguna og getur kostnaður verið á bilinu 150 - 350 þúsund krónur. Framkvæmdastjóri hafði einnig samband við Valitor sem setur upp örugga greiðslusíðu. Stjórnin samþykkir að klára að rafvæða minningakortin.
5.
Skuld gjafasjóðs við HSSA
Málsnúmer 201402056
Stjórn Gjafa- og minningasjóðs samþykkir að greiða út skuld sjóðsins við HSSA vegna tækjakaupa að upphæð 1.638.229 kr.