Fara í efni

Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs

70. fundur
22. apríl 2014 kl. 17:30 - 00:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Ásgeir Gunnarsson formaður
Guðmundur Heiðar Gunnarsson aðalmaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir aðalmaður
Matthildur Ásmundardóttir
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Skipulagsskrá fyrir Gjafa- og minningarsjóðs
Málsnúmer 200806007
Fjallað var um starfsreglur sjóðsins í stjórn HSSA og þær samþykktar þar en þær voru samþykktar í stjórn Gjafa- og minningasjóðs 25.mars 2014.
2.
Umsóknir í Gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs
Málsnúmer 200910015
Sótt er um fjármagn til kaupa á hjartalínuritstæki fyrir Heilsugæslustöð HSSA að upphæð 1.418.020 kr. án vsk. Umsóknin er samþykkt. Óskað er eftir styrk til kaupa stafrænum búnaði og litlu sjónvarpi til að bæta sjónvarpssendingar úr Hafnarkirkju og á hjúkrunarheimilið. Sótt er um allt að 200.000 kr. Umsóknin er samþykkt.