Fara í efni

Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs

73. fundur
28. október 2014 kl. 18:30 - 00:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir aðalmaður
Matthildur Ásmundardóttir embættismaður
Kristín Hermannsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Umsóknir í Gjafa- og minningarsjóð Skjólagarðs
Málsnúmer 201410058
Undanfarið hefur Gjafa- og minningasjóður Skjólgarðs fengið háar peningagjafir frá félagasamtökum og einstaklingum. Hirðingjarnir lögðu 800.000 kr. inn á reikning gjafasjóðsins, Kvenfélagið Vaka í Nesjum 150.000 kr. ásamt því að einstaklingur gaf sjóðnum 3.000.000 kr. Stjórn Gjafa- og minningasjóðs Skjólgarðs samþykkir eftirfarandi umsóknir:
Húsgögn, 4 stólar stólar að upphæð 168.000 og 3 borð á hjúkrunardeild að upphæð 156.000 án vsk.
MaxiTwin seglalyftari á hjúkrunardeild að upphæð 691.000 án vsk.
Sjónvarp á hjúkrunardeild að upphæð 450.000 með vsk.
Súrefnisvél með rafhlöðu að upphæð 466.984 með vsk (372.099 án vsk).
Hjólastóll að upphæð 56.663 án vsk.
4 stk spjaldtölvur að upphæð 305.964 með vsk.
Innkoma í sjóðinn á síðasta ári var 1.600.000 kr. Búið er að úthluta fyrir 600.000 kr. það sem af er árinu. Gjafafé Hriðingjanna og Kvenfélagsins Vöku eru samtals 950.000 kr.