Fara í efni

Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs

74. fundur
4. júní 2015 kl. 12:00 - 13:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Sigurður Mar Halldórsson aðalmaður
Halldóra Bergljót Jónsdóttir aðalmaður
Sigurlaug Gissurardóttir aðalmaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Ársreikningur_2014
Málsnúmer 201506008
Ný stjórn Gjafa- og minningasjóðs Skjólgarðs telur rétt að fyrri stjórn samþykki reikninga ársins 2014. Jafnframt felur ný stjórn framkvæmdastjóra að kanna núverandi vaxtakjör á bankareikningum sjóðsins og leita tilboða hjá öðrum fjármálastofnunum. Stjórnin óskar þess að uppsetning reikninga verði endurskoðuð.
2.
Starfsreglur Gjafa- og minninga
Málsnúmer 201506009
Farið yfir starfsreglur Gjafa og minningasjóðsins sem samþykktar voru 22.apríl 2014. Ljóst er að endurskoða þarf starfsreglur sjóðsins. Framkvæmdastjóra falið að kanna hvaða form þurfi að hafa varðandi endurskoðun reikninga. Stefnt er að því að fara yfir starfsreglurnar á næsta fundi stjórnarinnar.