Fara í efni

Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs

77. fundur
29. mars 2016 kl. 15:00 - 16:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Sigurður Mar Halldórsson aðalmaður
Halldóra Bergljót Jónsdóttir aðalmaður
Sigurlaug Gissurardóttir aðalmaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Gjöf frá Lionsklúbbi Hornafjarðar
Málsnúmer 201603086
Lionsklúbbur Hornafjarðar hefur óskað eftir því að peningagjöf að upphæð að hámarki 550.000 kr. til kaupa á upplýsinga- og afþreyingatækjum fari inn í Gjafa- og minningasjóð. Stjórn Gjafa- og minningasjóð lýsir ánægju yfir velvild til stofnunarinnar og samþykkir.
2.
Umsókn í Gjafa- og minningasjóð um kaup á verkjadælu
Málsnúmer 201603085
Sótt er um styrk til kaupa á verkjadælu fyrir hjúkrunar- og sjúkradeild. Verkjadæla auðveldar mjög verkjameðferð fyrir sjúklinga sem eru í langvarandi verkjameðferð svo sem krabbameinssjúklinga, líknandi meðferð o.fl. Sótt er um styrk að hámarki 250.000 kr. án vsk. Stjórnin samþykkir kaupin.
3.
Umsókn í Gjafa- og minningasjóð um kaup á rúmdýnum
Málsnúmer 201603084
Sótt er um styrk til kaupa á 7 rúmdýnum fyrir hjúkrunar- og sjúkradeild. Fengist hefur tilboð frá Fastus í dýnur að upphæð 54.258 kr. stk án vsk. Sótt er um 379.807 kr. án vsk til kaupa á dýnum.

Stjórnin lýsir yfir áhyggjum sínum að sú staða sé uppi að stofnunin sé þannig stödd fjárhagslega að ekki sé til fjármagn til endurnýjunar á nauðsynlegum húsbúnaði svo sem rúmum og dýnum fyrir íbúa. Markmið Gjafa- og minningasjóðs eru að bæta aðbúnað stofnunarinnar umfram grunnþarfir. Það er ljóst að rekstrarfé stofnunarinni er ekki nægjanlegt þegar óska þarf eftir styrk frá Gjafa- og minningarsjóði til kaupa sem þessara.

Stjórnin samþykkir beiðnina.