Fara í efni

Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs

78. fundur
17. maí 2016 kl. 12:00 - 12:45
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Sigurður Mar Halldórsson aðalmaður
Halldóra Bergljót Jónsdóttir aðalmaður
Sigurlaug Gissurardóttir aðalmaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Ársreikningur Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs
Málsnúmer 201605048
Farið yfir ársreikning Gjafa- og minningasjóðs.
Rætt um bankakjör sjóðsins, lagt til að fjármálastjóri sveitarfélagsins fari yfir vaxtarkjör og gefi sjóðnum skriflegt álit á ávöxtunarleiðum sjóðsins.
Ársreikningurinn er samþykktur.
2.
Umsóknir í Gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs
Málsnúmer 201410058
Sótt er um styrk til kaupa á 2 rúmum fyrir hjúkrunar- og sjúkradeild. Tilboð í tvö rúm ásamt dýnum er að upphæð 732.516 kr. án vsk. Gjafasjóður samþykkir kaup á einu rúmi að upphæð 366.258 kr. án vsk. Reglur sjóðsins heimila ekki frekari fjárútlát að sinni nema komi inn frekari tekjur í sjóðinn.
3.
Gjöf frá Kiwanis klúbbi Hornafjarðar
Málsnúmer 201605049
Kiwanis klúbburinn á Hornafirði hefur óskað eftir því að gefa HSU Hornafirði barnahjólastól að andvirði 215.000 með vsk ásamt LED ljósi til að lýsa upp æðar, Veinlite LED að upphæð 66.388 kr. án vsk. Óskað er eftir því að Gjafa- og minningasjóður sjái um kaup á þessum vörum og þá að sækja endurgreiðslur á virðisauka. Beiðnin er samþykkt.