Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs
80. fundur
3. júlí 2017
kl.
12:00
-
13:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Sigurður Mar Halldórsson
aðalmaður
Sigurlaug Gissurardóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Ársreikningur Gjafa- og minningasjóðs Skjólgarðs 2016
Afreiðslu ársreikning er frestað til næsta fundar.
2.
Ósk um styrk í Gjafa- og minningasjóð 2017
Kvenfélagið á Höfn lagði niður störf á síðasta ári og gaf 200.000 kr. til Gjafa- og minningasjóðs og óskaði eftir því að peningum yrði varið í kaup á tækjum sem nýtast konum og börnum. Óskað er eftir því að sjóðurinn samþykki kaup á vog fyrir ungabörn og vog til nota í mæðravernd og ungbarnavernd að upphæð 123.352kr. án vsk. Stjórn sjóðsins samþykkir kaupin.
Óskað er eftir styrk til kaupa á tveimur þrekhjólum fyrir sjúkraþjálfun. Sótt er um allt að 400.000 kr. án vsk en tryggt er að Hirðingjarnir og Lionsklúbburinn Kolgríma munu leggja inn á reikning Gjafa- og minningasjóðs samsvarandi upphæð. Stjórn sjóðsins samþykkir kaupin.
Sótt er um styrk til kaupa á 5 rúmdýnum á hjúkrunar- og sjúkradeild. Hafist var handa við endurnýjun á dýnum á síðasta ári og nú er áfram haldið. Sótt er um styrk að upphæð 167.525 kr. án vsk. Gjafasjóður samþykkir kaup á dýnunum.

3.
Afgreiðsla umsóknar - 201410058
Gjafa- og minningasjóður samþykkti kaup á hjúkrunarrúmi þann 17. maí 2016 að upphæð 366.258 kr. Verð á rúminu reyndist hærra en samþykktin eða 419.258. Gjafa- og minningasjóður samþykkir kaupin að upphæð 419.258 kr. án vsk. Stjórn sjóðsins samþykkir að greiða mismuninn eða 53.500 krónur.