Fara í efni

Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs

81. fundur
12. september 2017 kl. 12:00 - 13:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Sigurður Mar Halldórsson aðalmaður
Halldóra Bergljót Jónsdóttir aðalmaður
Sigurlaug Gissurardóttir aðalmaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Ársreikningur Gjafa- og minningasjóðs Skjólgarðs 2016
Málsnúmer 201709336
Ársreikningur Gjafa- og minningasjóðs er samþykktur með 2 milljón króna halla sem útskýrast af kaupum á ómtæki fyrir heilsugæsluna. Kaup á ómtækinu var samvinnuverkefni Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar og Gjafa- og minningasjóðs. Það tókst að safna rúmum 4 milljón krónum upp í kaup á ómtækinu, gjafasjóðurinn lagði til rúmar 2 milljónir. Ómtækið hefur sannað gildi sitt og verið mikið notað á heilsugæslunni.
2.
Gjafalisti Gjafa- og minningasjóðs Skjólgarðs
Málsnúmer 201709254
Farið yfir lista yfir gjafir til stofnunarinnar frá Gjafa- og minningasjóðnum og einnig frá öðrum líknarfélögum.