Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

145. fundur
11. júní 2012 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Sigurður Ægir Birgisson varaformaður
Nína Sibyl Birgisdóttir aðalmaður
Valdemar Einarsson aðalmaður
Páll V. Ólafsson aðalmaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Haukur Ingi Einarsson (HIE) starfsmaður tæknisviðs
Birgir Árnason starfsmaður tæknisviðs
Sigfús Harðarson embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Dýpkun í Hornafjarðarhöfn
Málsnúmer 201103031

Farið var yfir dýpkun í Hornafjarðarhöfn.  Kom fram að um 31 þúsund m³ hafi verið dælt upp.  Hjalti gerði grein fyrir samtölum við forstöðumann hafnarsviðs Siglingastofnunar um fyrirkomulag dýpkunar.  Hafnarstjóra og formanni falið að ræða við Siglingastofnun um dýpkun og uppgjör vegna dýpkunar 2012.

2.
Frágangur á Leirusvæði
Málsnúmer 201206005

Birgir greindi frá því að búið er að sá grasfræjum og dreifa bikblöndu á stóran hluta svæðisins.  Auk þess hefur 500 víðiplöntum verið plantað á svæðinu.  Fyrirhugað er að sá í losunarsvæðið á næstu vikum.

3.
Framkvæmdir
Málsnúmer 200808034

Birgir greindi frá því að framkvæmdum við bræðslubryggju sé að ljúka.  Upplýsti að ný vog sé að koma undir helgi en búið er að steypa undir hana.  Lagfæring á Miklagarðsbryggju hefur ekki hafist ennþá.

Haukur greindi frá því að framkvæmdum við tjaldsvæði er að mestu lokið.  Eftir er að ganga frá svæðinu með þökum.  Einnig eru fráveituframkvæmdir í Nesjum að mestu búnar.  Nú taki við mælingar á rennsli til að meta stærð þess búnaðar sem nota þarf í næsta áfanga.

4.
Dráttarvinda í Birni Lóðs
Málsnúmer 201206004

Hafnarstjórn óskar eftir verk- og kostnaðaráælun um verkefnið og í framhaldi verði málið lagt fyrir.  Framkomnum tilboðum í verkið hafnað.

5.
Björgun Ölmu
Málsnúmer 201111021

Hafnarstjórn felur lögmani sveitarfélagsins í málinu umboð til að leiða það til lykta í samráði við formann hafnarstjórnar og starfsmenn hafnarinnar.

6.
Önnur mál
Málsnúmer 201102011

Sigurður Ægir benti á að 9 merkið væri að detta fram fyrir sig.  Sigfús sagði að fyrirhugað væri að ráða bót á málinu.