Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

149. fundur
25. október 2012 kl. 00:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Sigurður Ægir Birgisson varaformaður
Nína Sibyl Birgisdóttir aðalmaður
Páll V. Ólafsson aðalmaður
Stephen Róbert Johnson 1. varamaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Björgun Ölmu
Málsnúmer 201111021
<DIV>Hjalti gerði grein fyrir samtali við lögmann sem hefur unnið að hagsmunagæslu fyrir Hornafjarðarhöfn í kjölfar björgunar á Ölmu.  Sagði að komið hafi fram að fundur verði föstudaginn 26. okt um niðurstöðu í samningaumleitunum um uppgjör við tryggingarfélag Ölmu og innbyrðis skipingu á milli þeirra útgerða sem komu að björgun og aðstoð við Ölmu.  Að öðrum kosti verði málinu stefnt fyrir dómstóla.</DIV><DIV>Sigurður Guðmundsson og Vignir Júlíusson komu á fundinn kl. 16.30 og greindu frá sjónarmiðum sínum um hvort ganga eigi til samninga eða stefna málinu fyrir dóm.</DIV><DIV>Hafnarstjórn felur lögmanni áframhaldandi vinnu að málinu með það að markmiði ljúka því með samningum í samræmi við forsendur í tölvupósti dags. 23. okt sl.</DIV>