Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

155. fundur
30. ágúst 2013 kl. 17:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Nína Sibyl Birgisdóttir aðalmaður
Valdemar Einarsson aðalmaður
Páll V. Ólafsson aðalmaður
Karl Sigurður Guðmundsson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Hannes Ingi Jónsson 1. varamaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Karl Sigurður Guðmundsson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Dagskrá
1.
Dælulögn milli Krosseyjar og fiskimjölsverksmiðju
Málsnúmer 201111020

Formaður setti fund og bauð gesti og fundarmenn velkomna, Birkir Birgisson og Þórður Jónsson mættu fyrir hönd Skinneyjar-Þinganess og kynntu framkvæmdir við hráefnisdælulögn.

Rætt um legu rafstrengs og legu dælulagnar við frystihús.

2.
Stefna í hafnarmálum 2014-
Málsnúmer 201307048

Hafnarstjóri fer yfir undirbúning að stefnu fyrir Hornafjarðarhöfn.

Hafnarstjórn samþykkir að farið verði í stefnumótun og starfsmenn vinni áfram með það að markmiði að hún klárist fyrir nk. áramót.

Hjalti vék af fundi kl 17:30.

3.
Viðhaldsdýpkun í höfninni
Málsnúmer 201008061

Sigurður gerir grein fyrir stöðu í dýpkunarmálum og verkfundum í kringum dýpkun, viðhaldsdýpkun er lokið, dælt magn var 52.875 m3.  Samkomulag er um greiðslur og frágang uppgjörs. Hannes upplýsir að Sigurður Ólafsson standi á fjöru og því beint til starfsmanns að skoða það mál.

4.
Framkvæmdir og viðhald við höfnina
Málsnúmer 201106046

Farið yfir framkvæmdir við höfnina og stöðu á viðhaldi þessa árs, rætt um viðhald og áætlun viðgerðar á vitanum í Lambhelli, ákveðið að Björgvin Óskar Sigurjónsson og Sigurður vinni útboðsgögn og sendi á hafnarstjórn.

Rætt um sig á Dengsabryggju og starfsmanni falið að kostnaðarmeta lagfæringu. Rætt um skemmdir sem urðu á Bræðslubryggju og áætlaða viðgerð.

Staða á vefmyndavélaverkefni fyrir höfnina rædd.

5.
Innsigling um Hornafjarðarós
Málsnúmer 200803042

Sigurður kynnir stöðu á rannsóknum á grynnslum, farið yfir stöðuskýrslu Gísla Viggóssonar, Sigurðar Sigurðarsonar og Söndru Ránar Ásgrímsdóttur frá Siglingastofnun, Skýrslunni verður komið til útgerðaraðila á Höfn og hún kynnt þingmönnum suðurkjördæmis í framhaldinu.

Á fundi með innanríkisráðherra og vegamálastjóra nýlega upplýsti vegamálastjóri að heildarskýrslan yrði tilbúin fyrir áramót.

6.
Farþegaskipamál
Málsnúmer 201212040

Sigurður kynnir stöðu mála, fer yfir kostnað af kynningarferðum og tekjur af farþegaskipum, farið yfir skipakomur og farþegafjölda til Hornafjarðar síðustu ár og ætlaðar tekjur af ferðamönnum til ferðaþjónustu aðila, einnig var upplýst um beina upplýsingagjöf með tölvupóstum og samtölum við fulltrúa útgerða farþegaskipa,

Sigurður segir frá ferð til Hamborgar á evrópusýningu 21. september næstkomandi til að kynna höfnina sem viðkomustað fyrir farþegaskip.

Rætt um framtíðina í markaðssetningu, ákveðið að kanna vilja ferðaþjónustuaðila til þátttöku í frekari markaðssetningu.

7.
Aðstaða fyrir fjarðabáta
Málsnúmer 201308005

Hafnarstjórn fer yfir undirskriftarlista þar sem eigendur fjarðbáta óska eftir því við hafnarstjórn að útbúin verði flotbryggja fyrir fjarðbáta.

Hafnarstjórn felur starfsmönnum að teikna upp og kostnaðarmeta aðstöðu fyrir fjarðbáta.

Málið tekið fyrir á næsta fundi Hafnarstjórnar.

8.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Málsnúmer 201211036

Hafnarfundur kynntur sem verður haldinn í Grindavík 20. september, ákveðið að Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður hafnarinnar fari sem fulltrúi.