hafnarstjórn Hornafjarðar
162. fundur
26. mars 2014
kl.
17:00
-
19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Sigurður Ægir Birgisson
varaformaður
Hannes Ingi Jónsson
aðalmaður
Valdemar Einarsson
aðalmaður
Páll V. Ólafsson
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
bæjarstjóri
Óskar Arason
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Ásgerður K. Gylfadóttir
Dagskrá
1.
Athugasemd vegna ástandsskoðunar á stálþiljum til hafnarstjórnar og bæjarráðs
Lagt fram bréf frá Hans O. Christensen þar sem hann gerir athugasemd við framkvæmd ástandsskoðunar á stálþiljum í Hornafjarðarhöfn. Rætt um tildrög málsins, kom fram að ekki þótti ástæða til að leita tilboða í verkið vegna eðlis þess. Í innkaupareglum sveitarfélagsins 5. gr kemur fram að heimilt er að ganga til samninga við aðila um kaup á vöru eða þjónustu án undangengis útboðs eða öflun verðtilboða ef ríkar ástæður eru til þess eða eðli verkefnis er þannig að útboð þess eða öflun verðtilboða eigi ekki við.
2.
Viðhald á bryggjum - Zink
Lögð fram skýrsla frá Köfunarþjónustunni ehf um ástandsskoðun á stálþiljum hafnarinnar. Fram kemur í skýrslunni að ástand stálþilja er misjafnt eftir staðsetningum. En í ljós kom að bregðast þarf við skemmdum á Miklagarðs- og Bræðslubryggju. Starfsmanni falið að senda skýrsluna til Vegagerðarinnar/Siglingastofnunar til upplýsa þá um ástandið. Rætt um kostnað og hvort hægt sé að leita styrkja í verkið. Starfsmanni falið að hefja undirbúning útboðsgagna vegna viðgerðar á Miklagarðsbryggju samkvæmt úttektinni.
3.
Landbrot á Suðurfjörum
Sigurður Guðmundsson forstöðumaður hafnarinnar og Vignir Júlíusson starfsmaður hafnarinnar fóru yfir verkið. Því lauk 13. mars sl. Starfsmönnum falið að ítreka við Vegagerðina að undirbúningur framtíðaraðgerða hefjist sem fyrst og hugað að heildarmyndinni. Suðurfjörugarður er farinn að láta á sjá á kafla og mikilvægt að taka það inní skoðunina. Vignir fór einnig yfir ástand Melatangabryggju og kom fram að bryggjan er ónýt og jafnvel hættuleg.
4.
Tilboð í dráttarvindu í Björn Lóðs
Sigurður Guðmundsson greindi frá því að verkið er í vinnslu en einsýnt að verkið klárist ekki um mánaðarmót eins og verktaki hafði áætlað. Starfsmönnum falið að kanna ákvæði samningsins um dagsektir.
5.
Landbrot við vélaverkstæði fiskimjölsverksmiðju
Reynir og Sigurður kynntu ástand á bakka við fiskimjölsverksmiðju. Nauðsynlegt er að bregðast við og verja bakkann fyrir frekara landbroti. Starfsmönnum falið að kanna eignarhald lóðarinnar og kanna umfang og kostnað þeirra aðgerða sem fara þarf í. Hafnarstjórn óskar eftir upplýsingunum ekki seinna en í næstu viku.