hafnarstjórn Hornafjarðar
163. fundur
22. apríl 2014
kl.
17:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Sigurður Ægir Birgisson
varaformaður
Valdemar Einarsson
aðalmaður
Páll V. Ólafsson
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
bæjarstjóri
Óskar Arason
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Ásgerður K. Gylfadóttir
Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Landbrot á Suðurfjörum
Sigurður Guðmundsson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar greindi frá samskiptum við Vegagerðina/Siglingastofnun vegna málsins. Vignir Júlíusson starfsmaður hafnarinnar átti fund með sérfræðingum í hafnarmálum vegna málsins og færði þeim gögn og rætt hvort það fjármagn sem sett er í verkið í áætlunum sé nóg. Starfsmenn Vegagerðarinnar eru að fara yfir gögnin og meta málið.
Einnig rætt um strandrofsvarnir innan hafnar og hvort stytta megi garðinn inní höfnina og viðhald á bryggjum.
Einnig rætt um strandrofsvarnir innan hafnar og hvort stytta megi garðinn inní höfnina og viðhald á bryggjum.
2.
Viðhald á bryggjum - Zink
Sigurður greindi frá viðbrögðum starfsmanna Vegagerðarinnar við skoðun á skýrslu um ástandsskoðun bryggjanna og hugmyndum um Zinkun til viðhalds. Starfsmanni falið að afla frekari upplýsinga um zinkun sem viðhald á bryggjum. Rætt um aðrar aðkallandi aðgerðir. Kostnaðartölur verði tilbúnar fyrir fjárhagsáætlun í haust.
3.
Landbrot við vélaverkstæði fiskimjölsverksmiðju
Reynir og Sigurður gerðu grein fyrir málinu ca. 30 metrar sem þarf að grjótverja í landi hafnarinnar. Starfsmönnum falið að kostnaðarmeta verkið og kanna hvenær er hægt að fara í það.
4.
Stefna í hafnarmálum 2014-2019
Reynir ræddi aðgerðaráætlun í framfylgd stefnunnar. Starfsmönnum falið að kanna hvaða skipulagsráðgjafar komi til greina í vinnu við skipulagsmál á hafnarsvæði og kanna kostnað við skipulagsgerð svæðisins.
5.
Hellisviti - tilboð í endurbætur
Tilboð í endurbætur á Hellisvita kynnt. Eitt tilboð barst í verkið frá H. Christensen ehf. kr. 6.267.750 sem er 102% af kostnaðaráætlun. Frávik var í tilboðinu varðandi verktíma þ.e. ósk um að hefja verkið í september nk.
Hafnarstjórn er samþykk því að gengið verði til samninga við H. Christensen ehf.
Hafnarstjórn er samþykk því að gengið verði til samninga við H. Christensen ehf.
6.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Sigurður ræddi Miklagarð og skil á milli hafnarinnar og Menningarmiðstöðvar varðandi kostnað við húsnæðið. Rætt frekar húsnæðismál hafnarinnar.
Rætt um næsta fundartíma hafnarstjórnar sem er síðasti fundur á kjörtímabilinu.
Ægir ræddi landfestur við Óslandsbryggju.
Valdemar vakti athygli á rusli í fjörunni austan við Álaugareyjarbryggju og opinn dælubrunn við Mikleyjarál.
Sigurður minnti á ósk við Cruz Iceland um Fam ferð hingað á Höfn. Ekki er hægt að verða við þeirri ósk sem er miður. Sigurður mun óska eftir endurskoðun á því.