Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

174. fundur
15. apríl 2015 kl. 15:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Valdemar Einarsson formaður
Sigurður Einar Sigurðsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Viðhaldsdýpkun 2015
Málsnúmer 201504024
Erindi barst frá Vegagerðinni um að hlutur ríkissjóðs í framkvæmdakostnaði yrði 60% og að frádregnum virðisaukaskatti er ríkisstyrkur áætlaður 19,5 milljónir og hlutur hafnarsjóðs 12,9 milljónir fyrir ári 2015. Fjárhagsáætlun hafnarinnar gerir ráð fyrir 7 milljónum í hluta hafnarsjóðs í viðhaldsdýpkun 2015. Hafnarstjórn álítur þessa breytingu í hlut ríkisins vera allt of seint fram komna þar sem lokið hefur verið við gerð fjárhagsáætlun þessa árs þó heimilt sé í hafnarlögum að draga úr framlagi ríksins verður að teljast eðlileg stjórnsýsla að slíkur gjörningur sé kynntur áður fjárhagsáætlun komandi árs er samþykkt svo tími vinnist til að bregðast við breyttum forsendum. Það getur ekki talist góð stjórnsýsla að erindi berist og veittur sé 6 virkir daga til að svara og bregðast við því. Auk þess er erindið sent með fyrirvara um samþykki Alþingis á þingsályktunartillögunni.
Hafnarstjórn harmar það að ný samgönguáætlun heimili það að skera niður svo brýn verkefni sem þetta. Í ljósi landfræðilegra aðstæðna er nauðsynlegt að dæla um 25.000 til 30.000 rúmmetrum af efni árlega úr höfninni til að hún geti haldið áfram að þjóna sínu hlutverki.

Hafnarstjórn staðfestir engu að síður að hún mun standa við skuldbindingar sínar þegar kemur að viðhaldsdýpkun hafnarinnar.
2.
Fundargerðir Cruise Iceland.
Málsnúmer 201502028
Skýrsla um komu skemmtiferðaskipa til landssins á árinu 2014. Logð fram til kynningar.
Einnig greinagerð vegna Seatrade Miami 2015 lögð fram.
Hafnarstjórn telur mikilvægt að áframhaldandi þátttaka hafnarinnar verði háð aðkomu hagsmunaaðila í sveitarfélaginu. Eins telur hafnarstjórn að nýráðinn atvinnu- og ferðamálafulltrúi hafi yfirumsjón með slíkri markaðssetningu. Til að ávinningur af komu skemmtiferðaskipa og upplifun ferðamannanna verði sem mest og best, verði að líta á þetta sem samstarfsverkefni.
3.
Dælulögn milli Krosseyjar og fiskimjölsverksmiðju
Málsnúmer 201111020
Áætlanir um frágang við dælulögn lögð fram til kynningar. Stefnt er að lokafrágangur hefjist á næstu vikum.
4.
Björgun á M/V Hauk
Málsnúmer 201504025
Greint frá atviki sem átti sér stað 1.apríl.
5.
Starfsmannamál Hornafjarðarhafnar 2014
Málsnúmer 201409012
Farið yfir áætlanir um nýtt vaktafyrirkomulag á höfninni sem tekur gildi um næstu mánaðarmót.
6.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Málsnúmer 201211036
Valdemar kynnti hugmyndir Humarhátíðarnefndar um að færa hátíðarsvæði á Miklagarðsbryggju.
Hafnarstjórn lýst vel á þessar hugmynd en leggur áherslu á að humarhátíðarnefnd hafi gott samstarf rekstraraðila á svæðinu.