Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

176. fundur
3. júní 2015 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Valdemar Einarsson formaður
Sigurður Einar Sigurðsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Sigurður Ægir Birgisson 1. varamaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Innsiglingin um Hornafjarðarós
Málsnúmer 201505004
Farið yfir hvernig mál og fundir sem haldnir hafa verið frá síðasta fundi hafnarstjórnar. Hafnarstjórn telur skynsamlegt að ekki verði gerð beygja á lænuna þar sem hún fer í gegnum Grynnslin.
Hafnarstjórn leggur þunga áherslu á mikilvægi þess að hraða útboðsmálum eins og kostur er þannig að framkvæmdir hefjist nú í júní og ljúki um miðjan júlí.
2.
Viðhaldsdýpkun 2015
Málsnúmer 201504024
Farið yfir tilboð sem bárust í viðhaldsdýpkun hafnarinnar. Alls bárust tvo tilboð og eitt frávikstilboð.
Trölli ehf. 220 milljónir 86,9% yfir kostnaðaráætlun
Hagtak ehf. 142,5 milljónir 20,9% yfir kostnaðaraáætlun
Frávikstilboð Trölla ehf. 122 milljónir 3,5% yfir kostnðaraáætlun
Kostnaðaráætlun hljóðaði uppá 117,9 milljónir.
Eftir yfirferð Vegagerðarinnar er frávikstilboð Trölla ehf. ekki löglegt þar sem ekki er boðin önnur aðferð eða leið til að vinna verkefnið heldur er aðeins verið að bjóða aðra uppgjörs aðferð.
Hafnarstjórn leggur því til að öllum tilboðum í verkið verði hafnað og bjóða bjóðendum að leggja inn nýtt tilboð, þar sem lægsta tilboð er rúmlega 20% yfir kostnaðaráætlun.
3.
Starfsmannamál Hornafjarðarhafnar 2014
Málsnúmer 201409012
Vignir Júlíussson vék af fundi undir þessum lið.
Hafnarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
4.
Deiliskipulag höfnin/Ósland
Málsnúmer 201409090
Farið yfir athugasemdir sem komið hafa við drög að deiliskipulagi. Hafnarstjórn samþykk að fella út lóðir sem eru vestast á deiliskipulagssvæðinu og verði því grænt svæði. Um er að ræða lóðir við Ófeigstanga 2 og 4 ásamt Miðós 1, 2 og 2a. Jafnframt verða þær heimildir sem fyrirhugaðar voru í deiliskipulaginu færðar á næstu lóðir.
5.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Málsnúmer 201211036
Vignir kynnti áhuga aðila á vegum Ismar um að koma á svæðið með fjarstýrðan mælingarbát til dýpismælinga á svæðinu. Hugsanlega fellur einhver kostnaður á hafnarsjóð vegna þessa verkefnis ef af verður. Hafnarstjórn tekur jákvætt í svona hugleiðingar og felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu og halda hafnarstjórn upplýstri um framvindu í sumar.
Valdemar lagði fram póst frá trillusjómanni vegna sorplosunar smábáta. Innheimt er gjald af smábátum vegna sorps en engin ílát á svæðin til að taka á móti sorpi. Vignir upplýsti að verið er að vinna í málinu og starfsmönnum falið fylgja málinu eftir.
Valdemar spurði um kerfið sem sett var upp til fuglavarna á svæðinu og hver reynslan af því er. Starfsmönnum falið að afla upplýsinga um reynslu af kerfinu og upplýsa hafnarstjórn.